Fréttir

Fimmtíu til sextíu ungmenni hafa nýtt þjónustu Hlýjunnar
Mánudagur 23. nóvember 2026 kl. 09:53

Fimmtíu til sextíu ungmenni hafa nýtt þjónustu Hlýjunnar

Milli fimmtíu og sextíu börn og ungmenni nýttu þjónustu Hlýjunnar á fyrsta starfsárinu samkvæmt bráðabirgðatölum sem Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, kynnti á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 3. nóvember sl. Óskað er eftir að fjárframlag til verkefnisins verði fjórar milljónir króna á næsta ári, tvöfalt framlag yfirstandandi árs.

Díana sagði Hlýjuna hafa tekið formlega til starfa í október í fyrra. Þjónustan sé ætluð börnum og ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára og meira en helmingur þeirra sem leitað hafi þangað hafi komið í fleiri en eitt viðtal.

Aðdragandi verkefnisins nái til ársins 2021 þegar ungmenni í bænum kölluðu eftir auknum stuðningi við geðheilsu og andlega líðan. Starfsfólk sveitarfélagsins hafi brugðist við og unnið að því að koma þjónustunni á fót.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Díana lagði áherslu á að þegar ungmenni stigu það skref að leita aðstoðar þyrfti að vera hægt að taka á móti þeim. Stuðningurinn yrði að vera aðgengilegur og biðtími sem stystur.

Hún sagði alla fulltrúa íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs hafa tekið undir bókun um að tryggja Hlýjunni nauðsynlegar rekstrarforsendur. Hún vonaðist til að samstaðan skilaði sér við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100