Viðsnúningur í rekstri Reykjanesbæjar
Viðsnúningur hefur orðið í rekstri Reykjanesbæjar á fyrstu þremur mánuðum nýs meirihluta. Afkoma bæjarsjóðs hefur batnað verulega frá miðju ári og stefnir nú í að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs verði jákvæð á árinu 2026, þrátt fyrir hallarekstur á fyrri helmingi ársins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í Reykjanesbæ.
Níu mánaða uppgjör bæjarsjóðs Reykjanesbæjar var kynnt í bæjarráði í morgun og sýnir það að rekstrarleg framlegð bæjarsjóðs hefur hækkað úr 8,4% í 9,4% frá sex mánaða uppgjöri ársins. Á sama tíma hefur orðið verulegur viðsnúningur í rekstrarniðurstöðunni, en halli bæjarsjóðs hefur minnkað úr tæpum 103 milljónum króna í tæpar 10 milljónir króna. Gert er ráð fyrir áframhaldandi bata í rekstri á síðustu þremur mánuðum ársins og að bæjarsjóður verði rekinn með afgangi á árinu 2026 í heild sinni, segir í tilkynningunni.
Á fyrstu sex mánuðum ársins var bæjarsjóður rekinn með 103 milljóna króna halla, þrátt fyrir að 366 milljóna króna einskiptistekjur frá HS Veitum hefðu verið færðar til tekna. Án þeirra hefði hallinn numið 469 milljónum króna.
„Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi og sýna að við erum á réttri leið. Strax á fyrstu vikum nýs meirihluta réðumst við í breytingar og hagræðingaraðgerðir með það að markmiði að ná betri tökum á rekstrinum. Við höfum jafnframt sent skýr skilaboð inn í stjórnsýsluna um aukið aðhald og ábyrga meðferð fjármuna bæjarbúa. Ég vil sérstaklega þakka starfsfólki Reykjanesbæjar fyrir góð viðbrögð og þátttöku í þeirri vinnu,“ er haft eftir Vilhjálmi Árnasyni, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Frá því að nýr meirihluti tók við stjórn sveitarfélagsins í júní hefur verið ráðist í ýmsar breytingar sem miða að því að einfalda stjórnsýsluna, draga úr kostnaði og bæta nýtingu fjármuna. Sérstök áhersla hefur verið lögð á aðhald í útgjöldum í daglegum rekstri og þá var ákveðið að endurráða ekki starfsmenn í nokkur stöðugildi sem losnuðu.
Meðal fyrstu aðgerða var að fækka nefndum og ráðum sveitarfélagsins, breyta stjórnskipulagi og endurskipuleggja verkaskiptingu innan stjórnsýslunnar. Þá voru laun bæjarstjóra lækkuð og sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi sett á laggirnar til að fara yfir rekstur sveitarfélagsins og greina frekari tækifæri til hagræðingar sem hefur nýst í daglegum rekstri.
„Við erum að sýna að það er hægt að ná betri árangri í rekstri með auknu aðhaldi og skýrri forgangsröðun. Við ætlum að halda áfram á þeirri braut enda er ábyrgur rekstur forsenda þess að við getum lækkað álögur á bæjarbúa og styrkt þá þjónustu sem skiptir fjölskyldurnar okkar mestu máli,“ segir Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, í tilkynningunni.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 fer í fyrri umræðu í bæjarstjórn 1. desember næstkomandi.
„Við hlökkum til að kynna fjárhagsáætlunina. Þar ætlum við að sýna að ábyrgur rekstur og öflug þjónusta geta farið saman. Við ætlum að fara betur með peninga bæjarbúa og setja fjölskyldurnar í Reykjanesbæ í fyrsta sæti,“ segir Gunnlaugur að lokum.







