Hafna beiðni um verslunar- og þjónustubyggingu á Flugvöllum
Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur hafnað beiðni Reykjanes Investment ehf. um þróunarsamning vegna spildu á Flugvöllum. Fyrirtækið hugðist koma þar upp verslunar- og þjónustubyggingu.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er spildan ætluð til geymslu stærri ökutækja.
Erindinu var hafnað á fundi skipulagsráðs 6. nóvember. Ekki er færður sérstakur rökstuðningur fyrir höfnuninni í fundargerðinni.





