Thelma með 41 stig og þrettán þrista í stórsigri gegn Aserbaídsjan
Keflvíkingurinn Thelma Dís Ágústsdóttir átti stórleik í sigri Íslands gegn Aserbaídsjan á Ólafsvöllum 129-41 en Keflvíkingurinn skoraði 41 stig, þar af 13 þrista sem er met sem og stigaskor hennar í leiknum.
Suðurnesjakonurnar í landsliðinu voru bestar í leiknum en gæðamunur á liðunum var mikill. Helena Rafnsdóttir sem var að leika sinn sjötta landsleik fór mikinn í fyrsta leikhluta þegar hún skoraði átta stig. Hún endaði með 15 stig í leiknum. Anna Ingunn Svandsdóttir lék líka vel og skilaði 13 stigum. Fyrirliðinn úr Keflavík, Sara Rún Hinriksdóttir, þurfti ekki að beita sér mikið og skilaði fimm stigum. Thelma Dís var vegar maður leiksins en í þessum þrettán þristum komu sex í röð á tímabili. Hún skoraði um þriðjung Íslands í leiknum.
Ísland hafði fyrir þennan leik unnið bæði Írland og Sviss í þessari leikjahrinu.







