Keflvíkingar Íslandsmeistarar liða í 16. sinn
Keflvíkingar vörðu Íslandsmeistaratitil sinn í liðakeppni á Íslandsmótinu í taekwondo sem fram fór um helgina. Þetta er í 16. sinn sem Keflavík fagnar Íslandsmeistaratitli liða.
Það bar helst til tíðinda að feðginin Heiða Dís Helgadóttir, Vignir Nói Helgason og faðir þeirra, Helgi Rafn Guðmundsson, yfirþjálfari Keflavíkur, sigruðu öll í sínum flokkum og urðu Íslandsmeistarar.
Heiða Dís var jafnframt valin besti kvenkeppandi mótsins.
Íslandsmeistarar Keflavíkur í einstaklingskeppni voru:
-
Magnús Máni Guðmundsson
-
Amir Maron Ninir
-
Viktor Berg Stefansson
-
Nawar Abo Assaf
-
Ahmad Batal
-
Helgi Rafn Guðmundsson
-
Vignir Nói Helgason
-
Heiða Dís Helgadóttir
Myndir: Taekwondosambandið og úr safni.





