Íþróttir

Blakdeild Keflavíkur í sókn – iðkendum fjölgar og starfsemin eflist
Mánudagur 9. nóvember 2026 kl. 10:07

Blakdeild Keflavíkur í sókn – iðkendum fjölgar og starfsemin eflist

Helgina 30. október til 1. nóvember fór fram fyrsta umferð Íslandsmóts yngri flokka. Blakdeild Keflavíkur sendi alls 22 iðkendur til leiks, sem er mesti fjöldi iðkenda sem deildin hefur sent á mót til þessa. Þátttaka hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

Mótið var það stærsta sem haldið hefur verið í yngri flokkum til þessa, en alls tóku 72 lið þátt og spilaðir voru 206 leikir yfir helgina.

U14 stelpurnar aftur komnar með eigið lið og tvöföldun hjá strákunum

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá U14 stelpulið frá Keflavík aftur á Íslandsmóti. Það er orðið langt síðan deildin hefur getað sent eigið lið í þessum flokki. Í fyrra þurfti að leita til annars félags eftir samstarfi til að ná saman liði, en nú sendum við átta stelpur til leiks í okkar eigin liði. Þær stóðu sig virkilega vel og enduðu í öðru sæti í B-riðli.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Það hefur einnig orðið mikil fjölgun hjá U14 strákunum. Í fyrra sendum við í fyrsta sinn eitt lið til keppni í þessum flokki en nú erum við með tvö lið, sem þýðir að strákarnir hafa tvöfaldast á milli ára. Annað liðið fékk liðsstyrk frá Aftureldingu en þrátt fyrir það vantaði enn tvo leikmenn til að manna liðið.

Strákarnir tóku einnig þátt í U16 flokki, þar sem tveir leikmenn frá Aftureldingu bættust í hópinn. Þeir spiluðu samtals 11 leiki á laugardegi og sunnudegi. Það er mikið álag, en framfarirnar voru mjög sýnilegar. Bæði U14 liðin enduðu í neðsta sæti síns riðils, en árangurinn var fyrst og fremst fólginn í þeirri reynslu og framförum sem hver og einn leikmaður sýndi.

U20 stelpurnar enduðu í 5. sæti

U20 stelpurnar okkar tóku einnig þátt í mótinu og enduðu í 5. sæti. Þær sýndu góðan leik og mikla baráttu og fengu dýrmæta reynslu í keppninni. Þær spiluðu í Mosfellsbæ en hin lið Keflavíkur voru í Kópavogi.

Blakdeildin hafði einnig skráð U16 stelpulið til leiks en þurfti að draga það úr keppni vegna mikilla árekstra í leikjaplani. U14 stelpurnar spiluðu upp fyrir sig í eldri flokki og U16 stelpurnar áttu einnig að spila upp fyrir sig í U20 flokki. Það reyndist því erfitt að manna alla leikina og tryggja að leikmenn gætu tekið þátt í sínum flokkum.

Samtals spiluðu lið Keflavíkur 29 leiki um helgina. Það er ánægjulegt að sjá hversu hratt starfið hefur vaxið og hversu fleiri iðkendur taka nú þátt í keppni.

Iðkendum fjölgar og Skólablak kynnir íþróttina fyrir fleiri börnum

Fyrir ári voru 19 iðkendur í blakdeildinni. Undir vorið voru þeir orðnir 32 og nú í upphafi nýs tímabils eru þeir 35. Við erum vongóð um að ná 50 iðkendum næsta vor. Það er mikil fjölgun á stuttum tíma og sýnir að áhuginn á blaki er að aukast í samfélaginu.

Hluti af þeirri uppbyggingu er Skólablaksverkefnið sem deildin vinnur að í samstarfi við Blaksamband Íslands og verkefnið Allir með. Við höfum heimsótt grunnskóla í nágrenninu og kynnt nemendum mismunandi útfærslur af blaki, meðal annars sitjandi blak.

Verkefnið hefur fengið góðar viðtökur og nú þegar taka fimm af sjö grunnskólum í Reykjanesbæ þátt. Einnig hafa skólar í nágrenninu sýnt verkefninu áhuga. Stefnt er að því að halda skólablaksmót seinni hluta skólaársins þar sem hver skóli sendir eitt lið til að keppa við lið frá öðrum skólum. Þannig fá nemendur tækifæri til að prófa blak í skólanum og upplifa líka skemmtilega keppni með öðrum skólum.

Við höfum fengið góðar viðtökur hjá íþróttakennurum og margir þeirra hafa bent á að blak fái takmarkað vægi í íþróttakennaranámi. Því finnst þeim gagnlegt að fá fræðslu og verkfæri sem hjálpa þeim að kenna íþróttina áfram á uppbyggilegan hátt.

Það er líka mikilvægt að börn fái tækifæri til að prófa fleiri íþróttir en þær sem þau þekkja nú þegar. Ekki finna öll börn sig í sömu íþróttum og því skiptir máli að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti. Með því að kynna blak í skólunum viljum við hjálpa fleiri börnum að finna íþrótt sem hentar þeim og stuðla þannig að aukinni hreyfingu og betri lýðheilsu.

Blak er fyrir alla aldurshópa

Blak er ekki eingöngu íþrótt fyrir börn og unglinga. Fullorðnir geta stundað blak sér til heilsubótar og tekið þátt í skipulagðri keppni á öllum aldri.

Í deildarkeppni Íslandsmótsins eru sjö kvennadeildir í neðri deildum og tvær karladeildir. Í flestum kvennadeildunum eru 12 lið, en í 8. deild eru níu lið. Karlamegin eru 12 lið í 2. deild og 16 lið í 3. deild. Alls eru þetta 97 lið í neðri deildum karla og kvenna, með fjölda iðkenda sem taka þátt í skipulagðri keppni yfir tímabilið. Keppnin fer fram á þremur mótshelgum yfir árið.

Í neðri deildunum keppa bæði fullorðnir og yngri iðkendur. Það gefur yngri leikmönnum tækifæri til að öðlast meiri leikreynslu og eldri iðkendum möguleika á að halda áfram að keppa skipulega yfir árið.

Nú er einnig að hefjast Deildarbikarinn, útsláttarkeppni fyrir lið í deildum neðan við 1. deild og úrvalsdeild. Þar þarf að vinna til að komast áfram í næstu umferð. Alls hafa 20 kvennalið og 10 karlalið skráð sig til leiks. Blakdeild Keflavíkur á lið í keppninni sem spilar sinn fyrsta útileik í 16 liða úrslitum í byrjun desember.

Blakdeild Keflavíkur býður upp á æfingar fyrir fullorðna, bæði í blönduðum hópi og kvennaflokki. Með því viljum við skapa fleiri tækifæri fyrir fólk í bænum til að stunda hreyfingu, kynnast blaki og taka þátt í félagsstarfi.

Nýir búningar og öflugur stuðningur

Um helgina voru nýju búningar deildarinnar teknir í notkun. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá iðkendurna spila í nýju búningunum með stuðningi styrktaraðila okkar, Eignarsölunnar, Riss verkfræðistofu og Avis. Alls eru nú um 34 iðkendur að klæðast þessum nýju búningum.

Við erum afar þakklát fyrir stuðning fyrirtækjanna og framlag þeirra til uppbyggingar blakstarfsins í Keflavík.

Við viljum einnig þakka foreldrum fyrir þann stuðning sem þeir veita starfinu. Þeir leggja mikið af mörkum, hvort sem er með aðstoð við mót, ferðalög, utanumhald eða hvatningu á hliðarlínunni. Án þessa öfluga foreldrahóps væri ekki hægt að halda úti jafn öflugu starfi.

Spennandi tímar fram undan

Framtíðarsýn Blakdeildar Keflavíkur er að halda áfram að fjölga iðkendum og byggja upp fleiri lið í öllum aldursflokkum. Markmiðið er að vera með lið í 1. deild í meistaraflokki á næsta ári og stefna á úrvalsdeildarlið innan fimm ára.

Það er margt spennandi fram undan. Meistaraflokkur kvenna tekur þátt í umferð deildarkeppninnar 13.-15. nóvember og í Deildarbikarnum í byrjun desember. Síðan fer önnur umferð deildarkeppninnar fram í febrúar og hver veit kannski komnar áfram í 8-liða úrslit í Deildarbikarnum.

Hjá yngri flokkunum er næst á dagskrá bikarmót U16 á Ísafirði í lok nóvember. Önnur umferð Íslandsmóts yngri flokka fer svo fram um miðjan janúar.

Það er óhætt að segja að mikið sé í gangi hjá Blakdeild Keflavíkur. Iðkendum fjölgar, fleiri lið taka þátt í keppni og starfsemin nær til sífellt fleiri aldurshópa. Við erum stolt af því sem hefur áunnist og hlökkum til að halda áfram að byggja upp öflugt blakstarf í Keflavík.

Blakdeild Keflavíkur – Meira en bara blak.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100