Íþróttir

Þrjú verkefni á Suðurnesjum fengu 1,4 milljónir úr Hvatasjóði
Mánudagur 9. nóvember 2026 kl. 11:01

Þrjú verkefni á Suðurnesjum fengu 1,4 milljónir úr Hvatasjóði

Þrjú verkefni íþróttafélaga á Suðurnesjum fengu úthlutað samtals 1,4 milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í síðustu viku. Öll verkefnin eru í Reykjanesbæ.

Fimleikadeild Keflavíkur hlaut tvo styrki upp á 500 þúsund krónur hvorn. Annar er fyrir verkefnið Með í leiknum – stuðningur á fimleikaæfingum og hinn fyrir verkefnið Pláss fyrir öll – jöfn tækifæri fyrir öll í fimleikum.

Judofélag Reykjanesbæjar hlaut 400 þúsund krónur fyrir verkefni sem miðar að því að fjölga börnum af erlendum uppruna í júdó.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
57 verkefni fengu 26 milljónir

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði samtals 26 milljónum króna til 57 verkefna um allt land. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Sjóðurinn er á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytis. Hann tók til starfa í lok árs 2024 og alla jafna hafa verið veittir styrkir úr honum þrisvar sinnum á ári. Þetta er önnur úthlutun ársins úr sjóðnum. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ og sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100