Fréttir

Vilja finna hvað stendur að baki fjarvistum barna
Mánudagur 9. nóvember 2026 kl. 06:39

Vilja finna hvað stendur að baki fjarvistum barna

Nýtt verklag um skólasókn í grunnskólum Reykjanesbæjar á að beina sjónum fyrr að því sem hindrar börn í að mæta í skólann. Verklagið byggir á þremur stuðningsþrepum og leggur áherslu á að sjónarmið barnsins sjálfs séu hluti af mati og ákvörðunum.

Í yfirferð í bæjarstjórn Reykjanesbæjar kom fram að ætlunin væri að færa áhersluna frá því að horfa fyrst og fremst á fjölda fjarvista yfir í að greina ástæður vandans. Skólaforðun og erfiðleikar með skólasókn gætu verið flóknir og kallað á mismunandi stuðning.

Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, sagði stuðningsþrepin ná frá snemmtækri aðstoð innan skólans til aukins stuðnings og þverfaglegrar samvinnu eftir þörfum. Mikilvægt væri að reyna að skilja hvað lægi að baki fjarvistum.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Menntaráð hefur lagt áherslu á að verklagið verði innleitt með samræmdum hætti í öllum grunnskólum sveitarfélagsins. Starfsfólk eigi að fá fræðslu og stuðning til að vinna eftir því.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100