Mannlíf

Nærmynd: Ók Fífí upp og niður Hafnargötuna með vinkonunum
Sunnudagur 8. nóvember 2026 kl. 05:36

Nærmynd: Ók Fífí upp og niður Hafnargötuna með vinkonunum

María Rós Skúladóttir er alin upp í Lyngholtinu í Keflavík og tekur nú við starfi sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Hún slakar best á við að brasa, er verkstjóri heimilisins og stenst illa snúð með bleikum glassúr. Í Nærmynd rifjar María Rós meðal annars upp rúntana á Fiat Uno sem hét Fífí, segir frá fyrirhuguðum jólum í Kína og hvers vegna „Full af andstæðum“ væri rétti titillinn á ævisögu hennar.

Nafn: María Rós Skúladóttir

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Árgangur: 1977

Búseta: Reykjanebær

Hverra manna ertu og hvar uppalin? Foreldrar mínir eru Inga Lóa Guðmundsdóttirog Skúli Skúlason og ég er alin upp  í Lyngholtinu í Keflavík.

Starf: Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar.

Hvað er í deiglunni: Ég er fyrst og fremst spennt að taka við mikilvægu hlutverki sem sviðsstjóri velferðarsviðs og fá tækifæri til að vinna með öflugu starfsfólki sem þar vinnur. Framundan eru svo aðeins öðruvísi jól þar sem við ætlum að eyða þeim í Kína þar sem sonur minn er við nám. 

Hvernig nemandi varstu? Ég held að ég hafi verið ágæt, þó á tímum hafi mér nú þótt aðrir hlutir eins og félagsstarf og skemmtileg heit meira mikilvæg en bókalestur.

Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Við undirbúning fermingadagsins man ég nú helst að það þótti eðlilegt að vera búin að liggja í ljósabekkjum.  Það er mér mjög minnistætt þegar vinkona mín sofnaði í einum ljósabekkjana í Perlunni og uppi varð fótur og fit því ekki tókst að vekja hana.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég held að það hafi alltaf blundað í mér lítill félagsráðgjafi og þörfin til þess að vera til gagns í samfélagi manna.

Áttu einhverja sérstaka fyrirmynd? Ég sæki fyrirmyndir víða. Oft er það fólk í kringum mig sem sýnir seiglu, hlýju og hugrekki í hversdagsleikanum sem veitir mér mestan innblástur og  fólk sem þorir að gera hlutina öðruvísi og lætur verkin tala.

Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki? Ég á góðar minningar af því að eyða tíma með ömmu og afa í sumarbústaðnum þeirra á þingvöllum þar sem ég var í búleik.

Besti ilmurinn? Kaffi ilmur á morgnana og lyktin af manninum mínum

Á hvaða bíl fórstu fyrsta rúntinn eftir prófið og með hverjum? Ég hafði keypt mér Fiat Uno áður en ég varð 17 ára  sem beið mín í innkeyrslunni. Bíllinn hét Fífí og þjónaði sínu hlutverki vel.  Ég hef alveg örugglega farið fyrsta rúntinn með vinkonum mínum upp og niður Hafnargötuna með stoppi í lúgunni á Aðalstöðinni.

Hvernig slakarðu á? Ég slaka best á því að brasa og finnst fátt betra en að vera að brasa eitthvað í höndunum, þó alls ekki við handavinnu enda arfaléleg í því. En við hjónin keyptum okkur hús á spáni sem við erum að gera upp og þar er mjög gott að slaka á. 

Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Kvöldfréttum, the Block og vikunni með Gísla Marteini. 

Hvað heldurðu að skjátími þinn sé mikill á hverjum degi að jafnaði? Allt of mikill

Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili?  Ég er verkstjóri á heimilinu og því frekar flink í því að koma hlutum á dagsskrá og útdeila verkefnum.

Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég sé um sunnudagssteikina og hægeldað lambalæri þá oftast fyrir valinu.

Hvert er hættulegasta helgarnammið? Snúður með bleikum glassúr

Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar það er hægagangur á hlutunum

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Leti og framtaksleysi

Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun? Livet er ikke det værste man har og om lidt er kaffen klar.

Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar ég var 2-3 ára þá bjuggum við mamma og pabbi á Sólvallargötunni. Þar bjó á efri hæðinni maður sem hét Geiri, fyrsta minningin mín er af mér á leið upp tröppurnar með ilmandi pönnukökur til að færa Geira gamla.

Hver er uppáhaldsbókin þín og rithöfundur? Bókin um Jónatan Livingstone máv eftir Richard Bach er bók sem mér þykir vænt um. Bókina fékk ég í gjöf frá vinkonu minni fyrir 30 árum en bókin kennir okkur að vera trú sjálfum okkur og markmiðum okkar en ekki síður að vera óhrædd við að fara okkar eigin leiðir í lífinu.

Er orð eða frasi sem þú notar mikið? Koma svo

Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Full af andstæðum

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100