Fyrstubekkingar verða verndarar jólatrés í Njarðvík
Nemendur í 1. bekk Njarðvíkurskóla gróðursettu sitkagreni í skrúðgarðinum í Njarðvík föstudaginn 6. nóvember. Þau hafa tekið að sér að vera verndarar trésins og ætla að fylgjast með því vaxa og dafna næstu tíu árin.
Með verkefninu fá börnin tækifæri til að taka þátt í skógrækt og fræðast um tré og nærumhverfi sitt. Trénu hefur verið fundinn sérstakur staður í garðinum og stefnt er að því að nemendur heimsæki það árlega í desember, dansi í kringum það og eigi saman jólalega stund.
Samkvæmt upplýsingum frá Njarðvíkurskóla er gróðursetningin samstarfsverkefni við Yrkju. Að þessu sinni var ákveðið að nýta styrk úr Yrkjusjóði til að kaupa eitt stærra tré í stað margra lítilla plantna.
Verkefnið er jafnframt unnið í samstarfi við Frímúrararegluna Sindra, en félagar hennar hafa tekið að sér að græða upp og endurnýja gróður og umhverfi skrúðgarðsins.
Nemendurnir fengu heim með sér skjal þar sem þeir staðfesta að þeir ætli að taka að sér hlutverk verndara jólatrésins. Þeir fylla skjalið út með foreldrum sínum og skila því síðan í skólann. Þar verður það varðveitt þar til þeir útskrifast úr 10. bekk og fá það aftur í hendur.






