Mannlíf

Alexandra gefur út nýtt tónlistarmyndband
Mánudagur 26. október 2026 kl. 10:43

Alexandra gefur út nýtt tónlistarmyndband

Alexandra Chernyshova, óperusöngkona og tónskáld sem búsett er í Reykjanesbæ og hefur hlotið Menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2020, hefur gefið út nýtt tónlistarmyndband við aríuna Móðurást úr óperunni Góðan daginn, frú forseti. Alexandra samdi tónlistina við ljóð eftir Ástu Björk Sveinbjörnsdóttur.

Alexandra sá sjálf um hljóðupptöku, hárgreiðslu og búning en Jón Rúnar Hilmarsson ljósmyndari sá um leikstjórn og myndvinnslu. Í myndbandinu fær íslensk náttúra að njóta sín en Alexandra syngur á fögrum náttúrustöðum í Þjórsárdal. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem listahjónin vinna saman að listsköpun en þeim finnst alltaf skemmtilegt að nýta tækifæri og frítíma til að vinna að listrænum verkefnum saman.

Arían Móðurást er úr óperunni Góðan daginn, frú forseti, sem er í þremur þáttum og tileinkuð frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrstu konunni í heiminum sem var kjörin forseti ríkis, og kvennabaráttunni á Íslandi, sem lagði grunninn að því að kona var kjörin forseti landsins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Árið 2021 var óperan frumflutt í Grafarvogskirkju undir stjórn Garðars Cortes eldri á Óperudögum í Reykjavík.

Arían fjallar um móðurhlutverkið og þær breytingar sem verða í lífi konu þegar hún verður móðir. Í henni er móðurhlutverkinu lýst sem mikilvægu hlutverki og draumi Vigdísar Finnbogadóttur.

Undanfarin ár hefur Alexandra unnið að nótnabók með 18 lögum úr óperunni, útsettum fyrir söngrödd og píanó. Nótnabókin fæst í Tónastöðinni í Reykjavík. Vigdís Finnbogadóttir fékk nótnabókina að gjöf á tónleikum í sumar og var mjög hrifin af aríunni Móðurást.

Þann 9. maí 2027 verða tónleikar með tónlist eftir Alexöndru Chernyshovu á tónleikaröðinni Sígildum sunnudögum í Hörpu.

Nýja tónlistarmyndbandið við Móðurást má sjá á YouTube-rás Alexöndru Chernyshovu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn