Mannlíf

„Það á enginn að missa af þessu“ - stórviðburður í Hljómahöll 1. nóv.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 25. október 2026 kl. 04:47

„Það á enginn að missa af þessu“ - stórviðburður í Hljómahöll 1. nóv.

Opnunarviðburður Óperunnar víða allt land - 36 manna sinfóníuhljómsveit, einsöngvarar, stór kór og leikarar úr Þjóðleikhúsinu flytja Undir sömu stjörnu í Hljómahöll 1. nóvember

Nýstofnuð Ópera hefur starfsemi sína með glæsilegri tónleikadagskrá undir yfirskriftinni Undir sömu stjörnu. Fimm sýningar verða haldnar víða um land og sú þriðja verður í Hljómahöll í Reykjanesbæ sunnudaginn 1. nóvember. Þar mun Keflvíkingurinn Jóhann Smári Sævarsson stjórna 36 manna sinfóníuhljómsveit og á sviðinu verða einnig einsöngvarar, stór kór og leikarar úr Þjóðleikhúsinu.

Frá Monteverdi til Gunnars Þórðarsonar

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Tónleikarnir Undir sömu stjörnu verða að sögn Jóhanns Smára sannkölluð veisla fyrir tónlistarunnendur, hvort sem þeir þekkja óperubókmenntirnar vel eða eru að kynnast þeim í fyrsta sinn.

„Þetta verður alveg stórglæsilegur viðburður. Við verðum með 36 manna sinfóníuhljómsveit, stóran hátíðarkór, fjóra unga og mjög góða einsöngvara úr nýju Óperunni og tvo leikara úr Þjóðleikhúsinu, þau Örn Árnason og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur.“

Sérstakur gestasöngvari á tónleikunum í Hljómahöll verður Martina Giselle, pólsk söngkona sem búsett er á Suðurnesjum og hefur áður komið fram með Jóhanni Smára.

„Hún söng meðal annars með okkur í Janis Joplin-tónleikunum og er gríðarlega flott söngkona,“ segir hann.

Dagskráin spannar nokkrar aldir í sögu óperunnar og leiðir áhorfendur í ferðalag frá barokktímanum til íslenskra samtímaópera.

„Við byrjum fyrir hlé á eldgamalli óperu eftir Monteverdi og förum síðan í gegnum tónlist eftir meðal annars Mozart, Beethoven, Wagner og Verdi. Einnig heyrum við perlur úr Carmen og fleiri þekktum óperum.“

Eftir hlé verður íslensk óperutónlist í sviðsljósinu.

„Þá koma verk eftir íslensk tónskáld, meðal annars Jórunni Viðar og Jón Ásgeirsson, og síðan aría úr óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson. Í uppklappinu verður svo drykkjuvísan fræga úr La Traviata.“

Skipta tíu sinnum um búninga

Jóhann Smári leggur áherslu á að þótt óperutónlist sé í forgrunni verði viðburðurinn langt frá því að vera hefðbundnir og formfastir tónleikar.

Leikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leiða áhorfendur í gegnum sögu óperunnar með leikþáttum, frásögnum og húmor.

„Mér skilst að þau skipti allt að tíu sinnum um búninga. Á milli tónlistaratriðanna verða þau með litla sketsa og segja sögur af tónskáldunum og þeim tímabilum sem tónlistin kemur frá. Þannig að þetta á að vera mjög fjörugt og skemmtilegt,“ segir Jóhann Smári.

Metnaðarfullt samstarf um allt land

Alls verða sýningarnar fimm. Sú fyrsta fór fram á Akureyri, síðan liggur leiðin til Eskifjarðar áður en komið verður í Hljómahöll 1. nóvember. Að því loknu verður sýnt í Skálholti og loks í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík.

Það sem gerir verkefnið sérstakt er að á hverjum stað er unnið með heimafólki í tónlistarlífinu.

Hér á Suðurnesjum setjum við saman okkar eigin hljómsveit og erum með okkar kór.“

Jóhann Smári segir þetta afar metnaðarfulla nálgun enda sé umtalsvert flóknara að skipuleggja tónleikaröð þar sem ólíkar hljómsveitir og kórar taka þátt á hverjum stað.

Jóhann Smári hefur um árabil verið ötull í óperu- og tónlistarstarfi á Suðurnesjum. Hann segir stofnun nýrrar Óperu innan Þjóðleikhússins marka mikil tímamót fyrir íslenskt óperulíf.

„Þetta er arftaki Íslensku óperunnar sem var lögð niður fyrir um tveimur árum. Nú er óperan orðin að stofnun innan Þjóðleikhússins og þetta hefur lengi verið mikið baráttumál okkar listafólks sem störfum í þessum geira. Við höfum viljað koma starfseminni á fastari grunn þannig að íslenskir óperulistamenn geti fengið fasta vinnu við það sem þeir gera,“ segir Jóhann Smári.

Hann segir fyrstu skrefin þegar hafa verið tekin með ráðningu fjögurra einsöngvara á fasta samninga og að tveir til viðbótar bætist við eftir áramót.

„Þetta verður mun burðugri stofnun en Íslenska óperan var og vonandi skapar það ný og spennandi tækifæri fyrir íslenskt óperulíf.“

Einstakt tækifæri fyrir Suðurnesjamenn

Jóhann Smári segir tónleikana í Hljómahöll einstakt tækifæri fyrir Suðurnesjamenn til að upplifa glæsilegan óperuviðburð í heimabyggð. Þar sameinist kraftar nýrrar þjóðleikhússtofnunar og öflugs tónlistarfólks af svæðinu.

Tónleikarnir Undir sömu stjörnu verða í Hljómahöll í Reykjanesbæ sunnudaginn 1. nóvember. Aðeins verður um eina sýningu að ræða á Suðurnesjum.

Söngvarar Óperunnar:

Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.

Leikarar Þjóðleikhússins:

Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason

Óperustjóri: Finnur Bjarnason.

Handrit og leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson

Tónlistarstjóri: Richard Schwennicke.

Jóhann Smári Sævarsson verður í stóru hlutverki í Hljómahöll 1. nóvember.

Bílakjarninn
Bílakjarninn