Ævar bangsi í alla sjúkrabíla landsins
Ævar bangsi í alla sjúkrabíla landsins
Í 32 ár hefur Kiwanisklúbburinn Keilir gefið bangsa í sjúkrabíla á Suðurnesjum. Þessi mjúki aðstoðarmaður hefur það mikilvæga hlutverk að róa og hughreysta börn sem þurfa á sjúkraflutningi að halda. Bangsinn hefur staðið sína vakt með prýði í öll þessi ár, hann var nefndur Ævar bangsi árið 2014.
Verkefnið hefur vakið athygli. Á heimsþingi Kiwanis starfsárið 2024–2025 var Ævar bangsi valinn eitt af bestu verkefnum Kiwanishreyfingarinnar á heimsvísu, það var mikil viðurkenning fyrir Kiwanisklúbbinn Keili.
Á nýliðnu umdæmisþingi Kiwanisumdæmisins Ísland–Færeyjar, sem haldið var á Höfn í Hornafirði, var tekið stórt skref í sögu verkefnisins þar sem samþykkt var að gera Ævar bangsa að landsverkefni Kiwanis. Það þýðir að innan skamms verður þessi litli vinur kominn í sjúkrabíla um land allt, tilbúinn að veita börnum öryggi og huggun þegar mest á reynir.







