Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Pistlar

Stefnir í hörmulegan október
Margrét GK.
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 23. október 2026 kl. 05:01

Stefnir í hörmulegan október

Frá því að síðasti pistill var skrifaður þá tók ég mér smá frí og skellti mér ásamt konu minni til Mílanó á Ítalíu, ekki get ég nú tengt mikið sjávartengt frá Suðurnesjunum við þann stað, og fann engan íslenskan fisk í búðunum í borginni.

Þó svo að veðrið hjá mér í Mílanó hafi verið býsna gott þá var það ekki það sama hérna á Suðurnesjum því það var svo til bræla alla þessa viku meðan ég var í burtu. Og eins og þetta lítur út núna þá stefnir í hörmulegan októbermánuð, í það minnsta núna. Komið vel yfir miðjan október og bátar frá Suðurnesjunum hafa lítið komist á sjóinn.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Reyndar er komandi vika svo til skárri en síðasta vika og kannski geta menn skotist út milli veðra.

Allavega ef við horfum bara á aflatölur hérna á Suðurnesjum núna í október þá líta þær ekki vel út.

Byrjum á færabátunum, þeir komust aðeins á sjóinn snemma í október en síðan ekki neitt, Ólafur GK var með 1,3 tonn í 2 róðrum í Grindavík. Dímon GK með 890 kíló í 2, Guðrún GK 660 kíló í 2, Hawkerinn GK 50 kíló, Fagravík GK 80 kíló og Una KE 220 kíló, allir eftir einn róður. Vonandi komast þessir bátar á sjóinn núna í vikunni, því ufsinn bara bíður eftir þeim í Röstinni.

Og talandi um ufsann þá hefur Sigvaldi skipstjóri á Grímsa GK verið að eltast við hann, en reyndar hefur báturinn lítið róið núna þessa viku sem ég var á Ítalíu, og hann er að fá félagsskap, því að núna hefur í Sandgerði legið bátur sem Siggi Alla á og gerir út, og það er Margrét GK. Þessi bátur á sér nokkuð langa sögu í útgerð á Íslandi og meðal annars frá Suðurnesjum því að Stakkavík ehf. átti þennan bát um tíma og hét hann þá Gulltoppur GK og var þá á línuveiðum með bölum.

Siggi Alla eignaðist bátinn árið 2024, en hann hefur gert út nokkuð marga báta sem hafa heitið þessu nafni Margrét GK, og líka aðra báta sem hafa heitir Kristbjörg ÁR og GK. Allir þessir bátar hafa átt það sameiginlegt að stunda veiðar með dragnót.

En núna verður breyting á, vegna þess að Margrét GK er núna búin að liggja við bryggju í Sandgerði og öllum búnaði fyrir dragnót hefur verið hent í land og settur í bátinn netabúnaður. Nú eru 20 ár síðan þessi bátur var síðast á netaveiðum og hét báturinn þá Egill Halldórsson SH og var frá Ólafsvík.

Krissi sem hefur verið skipstjóri á Margréti GK á dragnót verður með bátinn á netunum en hann hefur lengi róið fyrir Sigga og ráðgert er að hann muni líka fara að eltast við ufsann eins og Grímsi GK, en Grímsi GK hefur verið við veiðar út á Hrygg og Boða.

Það  verður áhugavert að sjá hvernig Margréti GK mun ganga á netaveiðunum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn