Blue Carrental
Blue Carrental

Pistlar

Af brælu og handfærarúlluþjófum
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 25. september 2026 kl. 05:42

Af brælu og handfærarúlluþjófum

Septembermánuður er búinn að vera mjög góður, veðurfarslega séð. Ekki mikið um brælur en þar kom að því að fyrsta brælan kom og hún kom sama dag og þessi pistill er skrifaður. Ansi oft sem brælur eru þá daga sem ég skrifa pistla.

Reyndar er þónokkur fjöldi báta frá Suðurnesjum á línu fyrir austan og þar fékk hann að finna fyrir fyrstu alvöru lægðinni sem gekk þar yfir, en vitlaust veður var fyrir austan og fór vindur upp í 48 metra á sekúndu í Neskaupstað þar sem meðal annars Fjölnir GK, Gísli Súrsson GK, Margrét GK og Auður Vésteins SU hafa verið á veiðum.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Það hefur nú verið þannig síðan í sumar að enginn minni bátur hefur verið á línuveiðum frá Suðurnesjunum, þangað til núna, en Særif SH, sem var búinn að vera með línuna norðvestur út frá Sandgerði og landaði þá á Arnarstapa, hefur núna komið tvisvar til Sandgerðis með afla, samtals um 20 tonn í tveimur róðrum. Særif SH var meðal annars með línuna í Röstinni þar sem báturinn var að veiða löngu, og gekk nokkuð vel, kom með 11,1 tonn í land og þar af var langa rúm 8 tonn.

Og Margrét GK sem var í Neskaupstað er komin suður og hefur náð einum róðri í Sandgerði og kom með tæp 5 tonn í land.

Fyrst ég er að tala um Austurland þá er rétt að líta aðeins á bátana frá Suðurnesjunum þar, en veiðin hefur gengið nokkuð vel hjá þeim. Að mestu eru bátarnir að veiða þorsk en hafa reyndar líka verið að leita að ýsu, en lítið er um ýsu á línumiðunum fyrir austan. Fjölnir GK er kominn með 153 tonn í 15 róðrum og mest 20,6 tonn í einni löndun, Gísli Súrsson GK 65 tonn í 7. Auður Vésteins SU 150 tonn í 15 og mest 18,2 tonn.

Og ef við kíkjum norður, en þar er Stakkavík með alla sína báta, nema Hemma á Stað GK. Óla á Stað GK hefur gengið best bátanna sem eru fyrir norðan, og hefur hann landað 149 tonnum í 15 róðrum og mest 20,3 tonnum, en hann landar á Siglufirði. Guðbjörg GK er líka komin á Siglufjörð, en báturinn byrjaði á Skagaströnd og hefur landað 91 tonni í 13 róðrum og mest 14,6 tonnum. Hópsnes GK er með 77 tonn í 16 róðrum og mest 7,7 tonn. Geirfugl GK byrjaði í Sandgerði en fór síðan til Skagastrandar og hefur landað 21 tonni í 6 róðrum. Gulltoppur EA 31 tonn í 7 róðrum og mest 6,2 tonn.

Aftur heim, en nokkrir bátar hafa verið á færum og þá að mestu að fara í Röstina að veiða ufsa. Einn af þeim bátum sem þangað hafa farið til veiða er Dímon GK sem Bjössi er skipstjóri á. Hann rær frá Sandgerði, en fór með bátinn í Grófina í Keflavík, því að báturinn þurfti að fara í smá viðgerðir þar. Einn morguninn þegar Bjössi var að fara í bátinn tók hann eftir því að það var bor fastur í hliðinu sem er inn á flotbryggjuna sem Dímon GK var við. Ekki var hægt að opna hliðið og tók hann líka eftir því að það vantaði handfærarúllur í bátinn.

Kom þá í ljós að um nóttina höfðu tveir menn reynt að bora út lásinn á hliðinu, en brutu borinn og klifruðu þeir meðfram hliðinu og inn á bryggjuna, fóru í Dímon GK og klipptu þar á burtu þær fjórar DNG-handfærarúllur sem voru í Dímon GK. Einnig eyðilögðu þeir hurðina inn í brúnna á bátnum, en einhver styggð kom að þjófunum og skildu þeir eftir eina DNG-rúllu og fóru ekki inn í bátinn.

Tjónið er um 4 milljónir króna, en Bjössi þarf að fá nýjar DNG-rúllur ásamt því að fá nýja hurð í brúnna á bátnum.

Nokkurt bras reyndist vera að komast á bryggjuna því að kalla þurfti út hafnarvörð í Keflavíkurhöfn til þess að reyna að opna læsinguna og líka svo að lögreglan kæmist í bátinn. Myndavélar eru við bryggjuna en þær sýndu ekki nægilega vel og til að mynda sást ekki hvernig bíl þessir þjófar voru á.

En Bjössi ætlar ekki að láta þetta stoppa sig í að halda áfram og á hann von á að fá nýjar DNG-rúllur og mun hann því geta haldið áfram að veiða ufsa í Röstinni í haust og vetur, en hann er einn af þeim færabátum hérna á Suðurnesjunum sem hafa róið allt árið á færin.

Bílakjarninn
Bílakjarninn