Lögreglan á Suðurnesjum aðstoðaði við rannsókn á alþjóðlegu smygli á fólki
Lögreglan á Suðurnesjum aðstoðaði bresku lögregluna við rannsókn á umfangsmiklu smygli á fólki milli landa. Ísland var eitt þeirra landa sem smyglararnir notuðu sem viðkomustað á leið til Bretlands, að því er segir í færslu lögreglunnar.
Aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum fól meðal annars í sér rannsóknir á vegabréfum og símum, húsleitir og skýrslutökur. Allar deildir embættisins komu að verkefninu. Lögreglumenn frá embættinu sóttu einnig aðgerðafundi hjá Europol með samstarfslöndum á meðan rannsóknin stóð yfir.
Lögreglan segir málið sýna mikilvægi alþjóðlegs lögreglusamstarfs þegar brot ná til margra landa.








