Blue Carrental
Blue Carrental

Fréttir

Lakari afkoma hjá Isavia og 8% fækkun farþega fyrstu sex mánuðina
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 24. september 2026 kl. 16:02

Lakari afkoma hjá Isavia og 8% fækkun farþega fyrstu sex mánuðina

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á fyrri helmingi ársins 2026 var jákvæð um 3.338 milljónir króna samanborið við 4.245 milljónir  króna fyrir sama tímabil á síðasta ári. Lækkunin milli ára nemur um 907 milljónum króna. Tekjur samstæðunnar lækkuðu um 4.158 milljónir króna milli tímabila og námu 20.295 milljónum króna.
„Lækkunina á tekjum samstæðunnar má annars vegar rekja til þess að rekstur fríhafnarverslunar á Keflavíkurflugvelli færðist frá dótturfélaginu Fríhöfninni ehf. til nýs rekstraraðila í maí 2025 og hins vegar fækkaði farþegum um Keflavíkurflugvöll milli ára vegna gjaldþrots flugfélagsins Play,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
Heildarafkoma tímabilsins var jákvæð um 441 milljón króna samanborið við jákvæða afkomu upp á um 1.130 milljónir króna fyrir sama tímabil í fyrra.
Fjárfestingar samstæðunnar námu um 5.659 milljónum króna á fyrstu 6 mánuðum ársins samanborið við 6.107 milljónir króna fyrir sama tímabil í fyrra.   
Á fyrstu 6 mánuðum ársins fóru um 3,4 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll sem er um 8% fækkun á milli ára.  
Lykiltölur úr árshlutauppgjöri samstæðu Isavia 2026:
  • Tekjur: 20.295 milljónir króna 
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA): 3.338 milljónir króna 
  • Heildarafkoma eftir skatta: 441 milljón króna 
  • Handbært fé: 5.505 milljónir króna 
  • Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum: 5.659 milljónir króna 
  • Eigið fé í lok tímabils: 53.125 milljónir króna 
  • Eiginfjárhlutfall: 42,06% 
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn
Bílakjarninn