Viðvörunarskilti við Grindavík verða endurbætt
Viðvörunar- og upplýsingaskilti í Grindavík verða endurbætt og skilaboð þeirra gerð skýrari. Verkefnið hefur verið fjármagnað og stendur til að ráðast í það á næstunni, að sögn Skarphéðins Bergs Steinarssonar, verkefnisstjóra í málefnum Grindavíkur.
Málið kom upp í fyrirspurnum á opnum fundi um áhættumat bæjarins á þriðjudagskvöld. Fundargestur benti á að rauð viðvörunarskilti við veginn inn í bæinn gætu haft áhrif á ferðaþjónustu. Hann spurði hvort skiltin myndu breytast nú þegar þeir þættir sem kynntir voru í nýju áhættumati hefðu verið metnir grænir.
Skarphéðinn sagði skilti, leiðbeiningar og upplýsingar mikilvægan hluta öryggismála. Fyrirhugað væri að bæta núverandi skilti, gera skilaboðin skýrari og huga jafnframt að útliti þeirra. Einnig væri verið að skoða viðvörunarskilti við sprungur utan þéttbýlisins.
Ekki kom fram í svari hans að rauð skilti yrðu einfaldlega fjarlægð eða að ákveðið hefði verið hvernig merkingum fyrir ferðafólk yrði háttað. Margrét Kristín Pálsdóttir lögreglustjóri lagði síðar áherslu á að upplýsingar um hættuna þyrftu áfram að vera sýnilegar. Óvissustig almannavarna væri enn í gildi og skýr upplýsingagjöf væri ein forsenda þess að halda öryggismatinu grænu.








