Blue Carrental
Blue Carrental

Fréttir

Öryggi, skólahald og húsnæði metin græn í Grindavík
Dóra Hjálmarsdóttir verkfræðingur hjá Verkís. Mynd: Skjáskot úr streymi Grindavíkurbæjar frá fundinum.
Miðvikudagur 23. september 2026 kl. 11:15

Öryggi, skólahald og húsnæði metin græn í Grindavík

Dóra Hjálmarsdóttir segir niðurstöðuna byggja á virkri vöktun, viðbúnaði og áætlunum um rýmingu

Öryggi fólks í Grindavík, skólahald og húsnæði til búsetu eru öll metin græn í nýrri vinnu við áhættumat bæjarins. Niðurstaðan er háð því að nauðsynlegum öryggisaðgerðum sé viðhaldið og að brugðist verði við ef forsendur breytast. Dóra Hjálmarsdóttir verkfræðingur hjá Verkís fór ítarlega yfir matið á opnum fundi í Grindavík á þriðjudagskvöld.

„Það er hægt að búa við þessa áhættu, það er hægt að mæta henni með aðgerðum,“ sagði Dóra í lok erindis síns. Hún lagði jafnframt áherslu á að náttúruváin væri enn til staðar og að matið þyrfti að þróast með aðstæðum.

Rýmingargeta og daglegt öryggi

Vinnan beindist fyrst og fremst að öryggi innan varnargarðanna: öryggi fólks í daglegu lífi, við rýmingu og við endurkomu. Dóra nefndi meðal nauðsynlegra aðgerða vöktun sprungna og annarra hættusvæða, viðhald girðinga og merkinga, greiðar flóttaleiðir, skýrar upplýsingar og æfingar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Viðbragðsaðilar fóru yfir fyrri atburði og rýmingar og mátu getu sína til að rýma bæinn ef nýr atburður verður. Að sögn Dóru er niðurstaðan sú að unnt sé að rýma Grindavík innan þess tíma sem talinn er tiltækur, að því gefnu að lykilþættir viðbúnaðar virki og tekið sé mið af fjölda og samsetningu fólks í bænum. Hún nefndi rýmingartíma upp á um eina klukkustund til eina klukkustund og fimmtán mínútur.

Viðvaranir byggjast meðal annars á SMS-boðum og flautu. Þá er einnig gengið í hús til að ná til þeirra sem kunna að missa af boðunum.

Sérstaklega hugað að börnum

Í mati á skólahaldi var bæði horft til daglegs starfs og þess hvernig tryggja mætti samfellu í námi ef rýma þyrfti bæinn um skemmri eða lengri tíma. Dóra sagði einnig þurfa að tryggja örugga rýmingu barna á skólatíma og samfelldan stuðning við þau.

Hún nefndi að boðið væri upp á valkvætt félags- eða íþróttastarf utan skólatíma meðan foreldrar væru enn við vinnu. Með því væri hægt að mæta þeirri áhyggju sem kom fram í fyrra áhættumati um börn án eftirlits í bænum.

Við mat á húsnæði var meðal annars litið til ástands bygginga og lóða, afmörkunar hættulegra svæða og þess hvort veitur gætu sinnt íbúum. Dóra sagði tímabundna dvöl í húsi án vatns eða rafmagns aðra stöðu en búsetu; virkar veitur væru grunnforsenda hennar.

Mat sem breytist með aðstæðum

Dóra lýsti áhættumatinu sem lifandi verkfæri. Fylgst verði með stöðu einstakra aðgerða og vísað í umferðarljósakerfi. Öryggið er þar forsenda hinna málaflokkanna: fari það á gult verður heildarniðurstaðan gul, jafnvel þótt skólahald og húsnæði séu enn metin græn.

Hún sagði þetta fyrstu niðurstöður vinnunnar. Frekari skoðun þyrfti meðal annars að beinast að starfsemi fyrirtækja, rýmingaráætlunum þeirra og reglum um starfsemi þegar hætta steðjar að.

Bílakjarninn
Bílakjarninn