Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Blue er „Keflavík alla leið“
Frá Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. VF/hilmarbragi
Þriðjudagur 22. september 2026 kl. 09:23

Blue er „Keflavík alla leið“

Bílaleigu- og ferðaþjónustufyrirtækið Blue stendur traustum fótum í Reykjanesbæ, en öll framtíðaruppbygging samstæðunnar er miðuð við svæðið. Magnús Þorsteinsson, forstjóri Blue, fór yfir stöðu og áskoranir í rekstri í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Ólíkt mörgum öðrum stórum leikendum í ferðaþjónustu hefur Blue valið að hafa höfuðstöðvar sínar og kjarnastarfsemi í Reykjanesbæ, en fyrirtækið rekur í dag 15.000 fermetra af fasteignum og nýtir um 30.000 til 40.000 fermetra af lóðum á svæðinu.

Einstakur mannauður en krefjandi rekstrarumhverfi

Af um 150 starfsmönnum í samstæðunni eru ríflega hundrað manns heimamenn úr Keflavík og Njarðvík. Magnús hrósaði staðbundnum mannauði sérstaklega í pallborðinu og sagði Blue vera „Keflavík alla leið“. Þrátt fyrir það hefur verið sótt að ferðaþjónustunni á mörgum vígstöðvum á síðustu misserum. Áskoranirnar lúta meðal annars að vörugjöldum, gengi krónunnar, hægari fjölgun ferðamanna og plássleysi nærri flugvallarsvæðinu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Magnús fagnaði auknum krafti og metnaði í sveitarfélaginu og benti á að þótt hlutirnir mættu stundum ganga hraðar fyrir sig í stjórnsýslunni væru allar framkvæmdir og kranar á lofti skýrt merki um grósku og líf. Hann undirstrikaði að þrátt fyrir harðar áskoranir í rekstrarumhverfinu væri mikill hugur í forsvarsmönnum Blue og félagið ætlaði sér að halda áfram að vaxa og byggja upp sína starfsemi í Reykjanesbæ.

Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn