Eiður Aron valinn leikmaður ársins hjá Njarðvík
Eiður Aron Sigurbjörnsson var valinn leikmaður ársins hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu þegar lokahóf Njarðvíkur fór fram á Hótel KEF á laugardagskvöld. Fjöldi leikmanna og sjálfboðaliða fékk þar viðurkenningu fyrir framlag sitt á liðnu keppnistímabili.
Eiður Aron, sem er fyrirliði Njarðvíkurliðsins, lék sitt fyrsta tímabil með félaginu og var öflugur í hjarta varnarinnar. Hann varð hins vegar fyrir því óláni að meiðast fyrir umspil Lengjudeildarinnar.
Viktor Leó efnilegastur
Viktor Leó Elíasson var valinn efnilegasti leikmaðurinn. Viktor Leó er fæddur árið 2009 og kom við sögu í fjórum leikjum í Lengjudeildinni í sumar. Alls lék hann sjö meistaraflokksleiki á vegum KSÍ á tímabilinu.
Arnleifur Hjörleifsson var valinn besti leikmaður liðsins að mati stuðningsmanna og stjórnar. Hann átti mjög gott tímabil á vinstri væng Njarðvíkurliðsins.
Bragi Karl Björnsson varð markahæsti leikmaður liðsins í Lengjudeildinni með níu mörk á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu. Hann hefur alls skorað tólf mörk í 29 leikjum fyrir Njarðvík.
Leikja- og markamet slegin
Arnar Helgi Kristjánsson fékk sérstaka viðurkenningu fyrir að hafa slegið leikjamet Njarðvíkur á tímabilinu. Hann hefur nú leikið 282 leiki fyrir félagið.
Oumar Diouck fékk einnig viðurkenningu eftir að hafa slegið markamet félagsins. Hann hefur skorað 79 mörk fyrir Njarðvík.
Fjórir leikmenn voru heiðraðir fyrir að hafa náð 50 leikjum fyrir félagið. Það voru þeir Arnleifur Hjörleifsson, Símon Logi Thasaphong, Björn Aron Björnsson og Valdimar Jóhannsson.
Stefán Marteinn sjálfboðaliði ársins
Stefán Marteinn var valinn sjálfboðaliði ársins. Hann tók við starfi liðsstjóra fyrir tímabilið og sinnti því hlutverki í allt sumar.
Njarðvíkingar stefna á að byggja áfram ofan á árangur sumarsins. Markmiðið fyrir næsta tímabil er skýrt: að koma liðinu upp í Bestu deild karla.








