Jafnt hjá Keflavík og Fram í fjörugum leik
Keflvíkingar gerðu jafntefli við Fram í leik liðanna í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á HS Orku vellinum í Keflavík í dag. Lokatölur 2-2 í mjög fjörugum leik en úrslitin sanngjörn því bæði lið áttu sín marktækifæri.
Þetta var annar leikur bítlabæjarliðsins í efri hlutanum en liðið tapaði við Íslandsmeisturum Víkings í síðustu viku.
Keflvíkingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik en engu að síður fengu Framarar margar hornspyrnur sem þeir nýttu ekki. Staðan jöfn í hálfleik en á þriðju mínútu síðari hálfleik komust heimamenn yfir með flottu skallamarki Stefans Ljubicic sem fékk frábæra sendingu nálægt endalínu við markteig frá Eiði Orra Ragnarssyni.
Framarar jöfnuðu nokkrum mínútum síðar en þetta hlýtur að teljast eitt mesta klaufamark sumarsins, alla vega hjá Keflavík. Framarinn Róbert Hauksson komst inn í miðan vítateig með boltann og Á
sgeir Orri markvörður náði ekki til boltans sem rann inn að
markinu þar sem tveir Keflvíkingar, Egill og Margin Brigic náðu ekki að hreinsa frá á hreint ótrúlegan hátt og boltinn rann yfir marklínuna með hjálpa Róberts, 1-1.
Markið virtist gefa Frömurum byr undir báða vængi og þeir sóttu stíft næstu mínúturnar og uppskáru mark um fimm mínúturm síðar. Freyr Sigurðsson skoraði sitt annað mark eftir að boltinn barst til hans eftir að varnarmönnum Keflavíkur tókst ekki að hreinsa almennilega frá vítateignum eftir sókn Framara, 1-2.
Keflvíkingar gáfust ekki upp við mótlætið og sóttu nokkuð meira næstu mínúturnar. Þeir uppskáru mark á 66. mínútu og aftur var það aftur glæsielgt skallamark. Egill Valur Karlsson, vinstri bakvörður Keflavíkur átti þá góða fyrirgjöf sem endaði á kollinum á Elvis Okello sem skallaði í netið og jafnaði, 2-2.
Liðin skiptust á að sækja það sem eftir lifði leiks en heimamenn þó nokkuð aðgangangsharðari að markinu, sérstaklega síðustu tíu mínúturnar og áttu nokkur góð tækifæri, m.a. Eiður Orri Ragnarsson og Ásgeir Páll Magnússon sem báðir voru nálægt því að skora, einnig kom Stefan Ljubicic í hættulegt færi. Lokastaðan því 2-2 sem hljóta að teljast nokkuð sanngjörn úrslit.
Keflvíkingar verma áfram 6. sætið með 29 stig en Skagamenn eru í 5. sæti en þeir sigruðu Blika örugglega.

Elvis skoraði sitt fyrsta mark með Keflavík og jafnaði 2-2 með flottu skallamarki. VF/hilmarbragi.

Fyrir leikinn var Hólmberts Friðjónssonar, þjálfara og leikmanns Keflavíkur og síðar þjálfara m.a. Framara, minnst en hann lést nýlega.






