Verne
Verne

Íþróttir

Guðjón Árni tekur við kvennaliði Keflavíkur
Fimmtudagur 17. september 2026 kl. 15:00

Guðjón Árni tekur við kvennaliði Keflavíkur

Guðjón Árni Antoníusson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá Keflavík. Hann tekur við starfinu eftir að hafa undanfarin ár þjálfað yngri flokka félagsins.

Guðjón Árni er öllum hnútum kunnugur hjá Keflavík og á að baki langan og farsælan feril með félaginu. Hann lék um árabil með meistaraflokki karla, var fyrirliði liðsins og varð tvívegis bikarmeistari í bláu treyjunni.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Þjálfað efnilega leikmenn félagsins

Undanfarin ár hefur Guðjón Árni komið að þjálfun hjá Keflavík. Hann hefur ásamt Einari Orra Einarssyni þjálfað 2. flokk félagsins við góðan orðstír.

Guðjón Árni þekkir því vel til starfsins innan knattspyrnudeildarinnar og einnig þeirra ungu leikmanna sem nú eru að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki kvenna.

Boðinn velkominn til starfa

Í tilkynningu frá knattspyrnudeild Keflavíkur er Guðjón Árni boðinn velkominn til starfa og þess getið að miklar væntingar séu bundnar við samstarfið. Ekki kemur fram hvenær hann stýrir liðinu í fyrsta sinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn