Njarðvík situr eftir annað árið í röð
Annað árið í röð þurfa Njarðvíkingar að bíta í það súra epli að komast ekki í úrslitaleik Lengjudeildar karla í knattspyrnu eftir 2-1 tap gegn Þrótti í Reykjavík í dag. Reykjavíkurliðið vann líka fyrri leikinn 0-1 og er komið í úrslitaleikinn um laust sæti í Bestu deild karla.
Njarðvíkingar áttu ekki sinn besta leik í mikilvægri viðureign. Þeir lentu tveimur mörkum undir eftir að Þróttarar skoruðu á 28. og 53. mínútu og voru því þremur mörkum undir í einvíginu. Þeir skoruðu mark á 68. mínútu þegar Valdimar Jóhannsson minnkaði muninn eftir að hafa afgreitt boltann í netið eftir aukaspyrnu.
Njarðvíkingar áttu tækifæri í lokin en þurftu tvö mörk til að jafna viðureignina. Omar Diouck var í dauðafæri á 90. mín og skaut í stöng.
Lokaniðurstaðan vonbrigði annað árið í röð hjá Njarðvíkingum.







