Íþróttir

Deildarmeisturum Víðis fagnað við komuna í Garðinn í kvöld
Laugardagur 12. september 2026 kl. 22:47

Deildarmeisturum Víðis fagnað við komuna í Garðinn í kvöld

Víðismenn eru deildarmeistarar í 3. deild að loknu knattspyrnusumrinu 2026. Lokaleikur Víðismanna var á Sauðárkróki í dag en Víðismenn höfðu tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrir leikinn. 

Leikurinn á Króknum var sannkallaður markaleikur þar sem hvort lið skoraði fjögur mörk. 

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Deildarmeistarabikarinn var afhentur Víðismönnum í dag og þegar liðið kom í Garðinn í lögreglufylgd brutust út mikil fagnaðarlæti eins og sjá má í myndasafni hér að neðan en Hilmar Bragi var með myndavélina í Garðinum í kvöld og tók á móti liðinu og myndaði fagnaðarlætin.

Deildarmeisturum Víðis fagnað í Garði

Bílakjarninn
Bílakjarninn