Visitor
Visitor

Íþróttir

Stærsti leikur sumarsins: Grindavík/Njarðvík mætir Þrótti í bikarúrslitum í dag
Laugardagur 12. september 2026 kl. 12:06

Stærsti leikur sumarsins: Grindavík/Njarðvík mætir Þrótti í bikarúrslitum í dag

Það er komið að stóru stundinni hjá stelpunum í Grindavík/Njarðvík en í dag leika þær til úrslita í Mjólkurbikarnum gegn Þrótti Reykjavík á sjálfum Laugardalsvelli. Flautað verður til leiks klukkan 16:00.

Mikið er um að vera fyrir leik en sameiginlegu FanZone-svæði beggja liða verður komið upp við Þróttarheimilið á milli 14:00 og 15:30. Þar verður alvöru bikarstemning fyrir alla fjölskylduna þar sem boðið verður upp á mat, drykki, hoppukastala, knattþrautir og lifandi tónlist.

Þá mætir Macron einnig á svæðið með merktan varning svo stuðningsfólk geti birgt sig upp af gulum, grænum og bleikum fatnaði áður en stigið er inn í stúku.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Miðasala er enn í gangi á midasala.ksi.is og eru stuðningsmenn hvattir til að fjölmenna og öskra stelpurnar áfram til sigurs í þessum úrslitaleik.

Bílakjarninn
Bílakjarninn