Visitor
Visitor

Íþróttir

„Stoltir af árangrinum en hungraðir í meira“
Föstudagur 11. september 2026 kl. 14:06

„Stoltir af árangrinum en hungraðir í meira“

Haraldur Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga í Bestu deild karla er ánægður með fótboltasumarið en liðið keppir í efri hluta úrslitakeppninnar. Stefnt á 4. sætið í deildinni.

„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá gerði ég mér kannski ekki vonir um efri hlutann í vor. Stefnan okkar var fyrst og fremst að halda okkur í deildinni. En þegar leið á tímabilið sáum við að það var góður séns og við tókum hann,“ segir Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkinga en liðið tryggði sér sæti í efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu, en liðinu var spáð neðsta sæti deildarinnar af sérfræðingum og fleirum, fyrir tímabilið. Víkurfréttir heyrðu í Haraldi Frey Guðmundssyni, þjálfara Keflvíkinga, og ræddu um vegferð sumarsins, leikmannaveltuna, nýja stefnu félagsins og komandi úrslitakeppni.

Efri hlutinn staðreynd – Viðsnúningur tímabilsins

Það ríkir mikil ánægja meðal stuðningsmanna liðsins eftir að Keflavík tryggði sig á meðal sex efstu liða Bestu deildarinnar fyrir úrslitakeppnina. Eftir 22 leiki stendur liðið í 6. sæti deildarinnar – árangur sem mörgum þótti fjarlægur í vor.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Haraldur segir að þrátt fyrir smá mótbyr undir lok reglulegs tímabils hafi markmiðið náðst. „Þrátt fyrir að við höfum tapað síðustu tveimur leikjunum í deildinni og þetta hafi kannski ekki lengur verið alveg í okkar höndum á lokasprettinum, þá tókst þetta. Við erum náttúrulega gríðarlega ánægðir með það.“

Þegar hann er spurður um lykilinn að þessum árangri segir Halli: „Það eru fyrst og fremst leikmennirnir. Við náðum að búa til mjög þéttan hóp og fengum inn rétta leikmenn sem pössuðu fullkomlega við það sem við vildum standa fyrir.“

Frábær stökkpallur fyrir unga leikmenn

Árangur Keflavíkur hefur vakið athygli og margir leikmenn staðið sig vel. Unnið hefur verið markvisst í að gefa ungum leikmönnum tækifæri, sem hefur skilað sér í stórum félagaskiptum síðsumars.

Lykilmenn á borð við Davíð Helga Aronsson (fór til Lyngby í Danmörku) og Breka Baxter (seldur til Egersund í Noregi) eru farnir á erlenda grundu, auk þess sem Eiður Orri Ragnarsson hefur verið seldur til meistara Víkings en klárar tímabilið á láni í Keflavík.

„Það eru tveir ungir og efnilegir leikmenn sem koma til Keflavíkur, fá sénsinn, blómstra og fá verðlaun í kjölfarið með því að taka næsta skref á ferlinum. Það er frábært fyrir okkur sem félag. Við getum sýnt ungum leikmönnum fram á að þeir geti komið hingað og tekið næsta skref í sínum ferli,“ segir Haraldur.

Breiddin prófuð: „Veiktumst ekki við breytingarnar“

Að missa stóra hlutverka- og lykilmenn um miðja vertíð getur reynst mörgum liðum erfitt. Ásamt sölu ungra leikmanna fækkaði enn frekar í leikmannahópnum þegar tveir leikmenn hættu.

„Allt í einu fór að fækka svolítið mikið mannskapnum á æfingum. En við vorum með góða breidd og holla samkeppni. Þegar einhver datt út eða fór, þá veiktist liðið lítið sem ekkert – stundum styrktist það jafnvel bara. Leikmenn eins og Nacho og Marín náðu að mynda mjög gott hafsentapar, og við náðum að hreyfa menn til án þess að missa taktinn.“

Á lokadegi félagaskiptagluggans bætti Keflavík við sig tveimur sterkum leikmönnum, þeim Elvis og Matej, til að tryggja breiddina fyrir lokasprettinn. „Það eru tveir mjög góðir leikmenn en þeir þurfa að hafa fyrir því að komast í liðið því hinir hafa verið að standa sig vel,“ bætir Haraldur við.

Samskiptin við bæjarbúa og vallaraðstæður

Aðspurður um stemninguna í bænum segir Haraldur að áhuginn á liðinu sé gríðarlegur, þó svo að mætingin á heimaleikina megi stundum vera betri.

„Það er mikill áhugi á liðinu í bænum en mætingin var á köflum slök. Við þurfum kannski að horfa í vallaraðstæðurnar hjá okkur – völlurinn er orðinn svolítið lúinn og það mætti fara að gera eitthvað í þeim málum. Mörgum finnst líka auðveldara að sitja heima og horfa á leikinn í sjónvarpinu. Við þurfum að finna leiðir til að fá fleira fólk á völlinn, en við finnum að bærinn stendur við bakið á okkur og fólk fylgist vel með,“ segir þjálfarinn að lokum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn