Visitor
Visitor

Íþróttir

Víðismenn fagna deildarmeistaratitlinum og taka á móti bikarnum í Garðinum
Föstudagur 11. september 2026 kl. 10:00

Víðismenn fagna deildarmeistaratitlinum og taka á móti bikarnum í Garðinum

Knattspyrnufélagið Víðir skorar á alla bæjarbúa og stuðningsmenn að fjölmenna og taka á móti nýbökuðum deildarmeisturum félagsins á laugardagskvöldið.

Áætlað er að meistaraflokkur Víðis mæti með bikarinn í Garðinn í kringum klukkan 22:00, en tekið verður á móti hópnum við gamla pósthúsið gegnt Kjörbúðinni.


Slegið verður í alvöru hátíðarhöld síðar um kvöldið á lokahófi félagsins en upplýsingar um það er að finna á samfélagsmiðlum Víðis.

Bílakjarninn
Bílakjarninn