Mánudagur 7. september 2026 kl. 11:13

Hjól og bílar í hópakstri niður Hafnargötu

Hópakstur bíla og hjóla niður Hafnargötu er fastur liður í dagskrá Ljósanætur. Hjólin fóru fremst og þeim var síðan lagt á stæði við smábátahöfnina í Gróf en bílarnir enduðu á Keflavíkurtúninu.

Myndatökumaður Víkurfrétta tók upp meðfylgjandi myndskeið við Hafnargötuna þegar ökutækjalestin renndi sér í gegnum mannfjöldann.