Fréttir

Iðunnarsjóður Hvalsneskirkju stofnaður
Fimmtudagur 10. september 2026 kl. 05:34

Iðunnarsjóður Hvalsneskirkju stofnaður

Nýr sjálfseignarsjóður, Iðunnarsjóður Hvalsneskirkju, var stofnaður á Hvalsnesi 27. ágúst. Markmið sjóðsins er að stuðla að verndun og viðhaldi Hvalsneskirkju til lengri tíma og skapa farveg fyrir velunnara kirkjunnar til að leggja því verkefni lið.

Stofnfundur sjóðsins var haldinn á Kaffi Golu á Hvalsnesi og sótti hann hópur fólks sem tengist Hvalsnesi og kirkjunni með ýmsum hætti. Allir sem sátu fundinn gerðust stofnfélagar sjóðsins.

Hugmyndin að sjóðnum hefur verið lengi í mótun. Nafnið vísar til Iðunnar og epla hennar í norrænni goðafræði, sem héldu ásunum ungum. Með sama hætti er hugmyndin að baki sjóðnum að leggja sitt af mörkum til að „halda Hvalsneskirkju síungri“.

„Hvalsnes og kirkjan eiga sér djúpar rætur hjá mér. Ég var mikið á Hvalsnesi í æsku hjá afa mínum og ömmu, vann meðal annars í kirkjugarðinum og sýndi gestum kirkjuna. Þar lærði ég ýmislegt sem hefur fylgt mér síðan. Sjóðurinn, sem heitir í höfðið á Iðunni móður minni, er leið til að gefa til baka og vonandi á sama tíma að styrkja tengsl næstu kynslóða við Hvalsnes og kirkjuna,“ segir Gísli Hjálmtýsson, einn hvatamanna að stofnun sjóðsins.

Meginhugmyndin er að stuðla að meiri samfellu og langtímahugsun í viðhaldi kirkjunnar. Með stöðugri fjármögnun, skipulagi og áætlanagerð verði hægt að leggja aukna áherslu á fyrirbyggjandi viðhald fremur en að bregðast fyrst við þegar viðgerða er þörf.

Sjóðnum er jafnframt ætlað að vera farvegur fyrir aðra velunnara Hvalsneskirkju sem vilja leggja viðhaldi og varðveislu hennar lið.

Gísli Hjálmtýsson lagði sjóðnum til 2,5 milljónir króna í stofnfé og aðrir stofnendur samtals 360.000 kr. Auk þess lagði Gísli fram gjafabréf, með loforði um frekari framlög næstu fimm ár, og nemur heildarstuðningur hans að lágmarki 12,5 milljónum króna og getur orðið allt að 15 milljónir króna. Stofnskrá Iðunnarsjóðs verður opin til ársloka 2026. Þeir sem ekki komust á stofnfundinn geta því enn orðið stofnendur sjóðsins með stofnframlagi að lágmarki 50.000 krónur.

Fjögurra manna stjórn var kjörin á stofnfundinum. Jafnframt var kosið fimm manna fulltrúaráð.

„Von okkar þessi stofnfundur marki þáttaskil í skipulögðu langtímastarfi í þágu Hvalsneskirkju og að sjóðurinn verði öflugur bakhjarl um varðveislu kirkjunnar ókomin ár.”

Bílakjarninn
Bílakjarninn