Gervigrasið í Sandgerði og ráðhúsið í Garðinn — Lífsgæðakjarni fyrir eldri borgara í Vörðuna
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar sameinast um metnaðarfulla framtíðarsýn
Stefnumarkandi ákvarðanir um íþróttamannvirki, stjórnsýslu og aðstöðu fyrir eldri borgara skapa ný tækifæri til uppbyggingar í Suðurnesjabæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarráði Suðurnesjabæjar sem samþykkti á 197. fundi sínum stefnumarkandi tillögur sem lagðar voru fram sameiginlega af öllum bæjarfulltrúum sveitarfélagsins, fulltrúum S-lista, D-lista, B-lista og M-lista.
Tillögurnar marka mikilvægt skref í uppbyggingu Suðurnesjabæjar og fela í sér skýra framtíðarsýn fyrir íþróttastarf, stjórnsýslu og þjónustu við eldri íbúa. Jafnframt skapa þær svigrúm til að nýta fjármagn og aðstöðu með markvissari hætti og beina kröftum sveitarfélagsins að verkefnum sem efla samfélagið og bæta lífsgæði íbúa.
Fjárfest í börnum, ungmennum og öflugu samfélagi
Lagt er til að gervigrasvöllur verði staðsettur á aðalvelli Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði og að knattspyrnuaðstaða fyrir börn og ungmenni í Garði verði bætt. Áfram verði jafnframt lögð áhersla á stuðning við íþróttafélög í sveitarfélaginu.
Markmiðið er að skapa börnum og ungmennum enn betri tækifæri til íþróttaiðkunar og styrkja um leið það öfluga félagsstarf sem er mikilvægur hluti af samfélaginu í Suðurnesjabæ.
Jafnframt verður lögð áhersla á að efla samgöngur milli byggðakjarna sveitarfélagsins þannig að íbúar njóti góðs af sterkari tengingu milli byggðakjarna Suðurnesjabæjar, Garðs og Sandgerðis.
Hugmyndasamkeppnir móta framtíðina
Til að tryggja metnaðarfulla og vandaða framtíðarsýn verður ráðist í hugmyndasamkeppnir á tveimur mikilvægum sviðum.
Annars vegar verður mótuð heildstæð framtíðarsýn fyrir uppbyggingu á svokallaðri Miðju milli Garðs og Sandgerðis þar sem móta á raunhæfa framtíðarsýn og gert er ráð fyrir starfsemi fyrir íþróttir og útivist. Hins vegar verður efnt til hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag og uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Sandgerði.
Með þessu er horft lengra en til einstakra framkvæmda og lögð áhersla á að skapa heildstæða, vandaða og framsækna uppbyggingu sem mun þjóna næstu kynslóðum.
Skilvirkari stjórnsýsla og nýr lífsgæðakjarni
Tillögurnar gera ráð fyrir að ráðhús Suðurnesjabæjar verði sameinað á einum stað, í núverandi ráðhúsi sveitarfélagsins í Garði.
Samhliða því verði lagður grunnur að lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Sandgerði á því svæði þar sem hluti stjórnsýslu sveitarfélagsins er nú til húsa.
Hugmyndin er að skapa þar lifandi og öflugt umhverfi þar sem þjónusta, félagsstarf og fjölbreytt úrræði fyrir eldri íbúa geta þróast og dafnað. Með sameiningu stjórnsýslunnar skapast jafnframt tækifæri til hagræðingar og skilvirkari nýtingar húsnæðis og fjármuna.
Sterk samstaða um framtíð Suðurnesjabæjar
Undanfarnar vikur hafa bæjarfulltrúar unnið markvisst að því að ná sameiginlegri niðurstöðu um þessi mikilvægu verkefni. Sú vinna hefur skilað samkomulagi um megináherslur sem allar fylkingar í bæjarstjórn standa að.
Tillögurnar verða staðfestar á bæjarstjórnarfundi í byrjun október
Þótt ólík sjónarmið geti eðlilega komið fram um einstaka þætti er mikilvægt að bæjarstjórn geti sameinast um stóru línurnar og tekið ákvarðanir sem hafa áhrif á framtíð sveitarfélagsins. Sérstaklega skiptir máli að horft sé til þarfa barna og ungmenna, eldri borgara og samfélagsins í heild.
„Við viljum skapa skilyrði fyrir áframhaldandi uppbyggingu“
Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, segir samstöðuna í bæjarstjórn mikilvægan styrk fyrir sveitarfélagið.
„Þetta eru stórar og mikilvægar ákvarðanir sem marka skýra stefnu fyrir framtíðaruppbyggingu Suðurnesjabæjar. Það er ekki sjálfgefið að ólík sjónarmið nái saman um verkefni af þessari stærðargráðu og þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að bæjarstjórn hafi sameinast um þessar megináherslur. Við erum að horfa til framtíðar og taka ákvarðanir sem þjóna samfélaginu öllu til lengri tíma. Ég er stolt af mínu fólki.“
Alexandra segir að tækifærin í Suðurnesjabæ séu mikil og mikilvægt sé að sveitarfélagið nýti þau af ábyrgð og framsýni.
„Suðurnesjabær er sveitarfélag með óþrjótandi möguleika. Hér er gott að búa, hér er sterkt samfélag og fjölmörg tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar og sóknar. Við þurfum að vera tilbúin til þess að hugsa stórt, nýta þau tækifæri sem gefast og forgangsraða þannig að fjármunir sveitarfélagsins nýtist sem best í þágu íbúa.“
„Með sameiningu stjórnsýslunnar skapast jafnframt tækifæri til aukinnar skilvirkni og hagræðingar. Það getur gefið okkur meira svigrúm til að sinna öðrum mikilvægum verkefnum, bæta þjónustu og fjárfesta í samfélaginu. Þetta snýst því ekki aðeins um húsnæði eða skipulag heldur um það hvernig við viljum byggja upp sveitarfélagið okkar til framtíðar.“
Samstarf sem skapar tækifæri
Bæjarstjórn fagnar því að tekist hafi að ná sameiginlegri niðurstöðu og leggja áherslu á mikilvægi þess að vinna saman að framtíð sveitarfélagsins.
Það er styrkur fyrir Suðurnesjabæ að bæjarstjórn geti sameinast um mikilvægar langtímaáherslur, horft fram á veg og unnið að lausnum sem þjóna hagsmunum íbúa.
„Við erum ekki alltaf sammála um leiðina að markmiðunum en við deilum þeirri sýn að Suðurnesjabær sé gott sveitarfélag til að lifa og starfa í. Þær ákvarðanir sem verið er að taka hér í dag sýna að með góðu samstarfi er hægt að ná utan um stór og mikilvæg verkefni samfélaginu okkar til heilla,“ segja oddvitarnir.
Fundargerð 197. fundar bæjarráðs má nálgast hér.






