Blue Carrental
Blue Carrental

Fréttir

Björgunarstöðin í Garði auglýst til sölu
Föstudagur 11. september 2026 kl. 16:08

Björgunarstöðin í Garði auglýst til sölu

Björgunarsveitin Ægir í Garði hefur sett á sölu björgunarstöðina Þorsteinsbúð við Gerðaveg 20b í Garði. Um er að ræða rúmlega 1700 fermetra húsnæði sem hefur verið mikið gert upp að hluta.

Ingólfur Einar Sigurjónsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ægis, segir komið að ákveðnum tímamótum hjá björgunarsveitinni. Starfsemi björgunarsveitarinnar er starf sjálfboðaliða en það sé talsvert átak fyrir sjálfboðaliðasamtök að eiga og reka svona stóra byggingu eins og Þorsteinsbúð er.

Hluti hússins er innréttaður sem björgunarmiðstöð fyrir bíla- og tækjakost björgunarsveitarinnar. Önnur rými hússins hafa verið notuð sem geymslur fyrir ferðavagna yfir vetrarmánuðina.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Ingólfur Einar segir að þegar hafi húsinu verið sýndur áhugi og nokkrir þegar komið til að skoða húsakostinn.

Á árum áður var rekin fiskvinnsla og rækjuverksmiðja að Gaukstöðum. Þorsteinn Jóhannesson, útgerðarmaður á Gaukstöðum, var mikill áhugamaður um björgunarsveitina. Hann var formaður sveitarinnar frá 1935 til 1968 og gerður að heiðursfélaga 1985. Það var hans vilji og fjölskyldu hans að björgunarsveitin eignaðist húsin að Gaukstöðum eftir hans dag. Þar hefur sveitin verið í nær þrjá áratugi og húsið fékk nafnið Þorsteinsbúð.

Allt umhverfi hússins er snyrtilegt og húsið sjálft býður upp á mikla möguleika.

Ingólfur Einar, formaður Björgunarsveitarinnar Ægis, sagði í samtali við Víkurfréttir að ef af sölu verður og sveitin flytji í annað hús þá muni það einnig fá nafnið Þorsteinsbúð af virðingu við söguna.

Hér er auglýsingin um eignina sem er í einkasölu hjá fasteignasölunni Stuðlabergi: https://fasteignir.visir.is/property/1106180

Bílakjarninn
Bílakjarninn