Visitor
Visitor

Fréttir

Reykjanesbær: Ráðast í átak til að fjölga leikskólakennurum
Föstudagur 11. september 2026 kl. 10:37

Reykjanesbær: Ráðast í átak til að fjölga leikskólakennurum

Reykjanesbær hefur stofnað sérstakan spretthóp sem ætlað er að móta raunhæfar leiðir til að fjölga leikskólakennurum og öðru fagfólki í leikskólum bæjarins. Ákvörðunin var samþykkt á fundi leikskólaráðs þann 28. ágúst síðastliðinn og er liður í 100 daga áætlun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.

Meginmarkmið verkefnisins er að gera leikskólana að enn eftirsóknarverðari vinnustöðum og styrkja mönnun. Þörfin á aðgerðum er brýn, enda er fullmönnun forsenda þess að unnt sé að fullnýta þau leikskólapláss sem þegar eru til staðar og tryggja fjölskyldum í bænum tilskylda þjónustu. Í tilkynningu kemur fram að uppbygging nýrra leikskólaplássa verði að haldast í hendur við markvisst átak í starfsmannamálum.

Byggt á fyrri greiningum

Spretthópurinn mun nýta sér vinnu og greiningar sem unnar voru á síðasta kjörtímabili af starfshópi um leikskólamál.

Ásdís Ólafsdóttir, formaður leikskólaráðs, mun stýra starfi spretthópsins og leiða vinnu við mótun tillagna. Ásamt henni sitja í hópnum:

  • B. Sif Stefánsdóttir, leikskólafulltrúi

  • Ólöf Magnea Sverrisdóttir, leikskólastjóri

  • Jenný Olga Eggertsdóttir, leikskólakennari

  • Anna Lydía Helgadóttir, sérkennslustjóri

  • Logi Þór Ágústsson, fulltrúi í leikskólaráði

  • Sverrir Örn Leifsson, varamaður í leikskólaráði

  • Halldór Rósmundur Guðjónsson

Gert er ráð fyrir að hópurinn skili skýru skrefi og fullmótaðri aðgerðaáætlun til leikskólaráðs í október næstkomandi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn