Blue Carrental
Blue Carrental

Fréttir

Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður til veislu á 50 ára starfsafmæli
Föstudagur 11. september 2026 kl. 14:17

Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður til veislu á 50 ára starfsafmæli

Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar 50 ára starfsafmæli dagana 11. og 12. september nk. og býður nemendum sínum, fyrrum nemendum, íbúum, velunnurum, gestum og gangandi til veislu. Aðgangur er með öllu ókeypis og aldurstakmark ekkert.

Á föstudag mun rjómi þess tónlistarfólks sem sótt hefur skólann í gegnum árin og jafnvel hafið sinn feril þar innan, stíga á svið Hljómahallar. Þar verður öllu tjaldað til og reynt að gefa einstakri tónlistarsögu skólans gaum á þriggja klukkustunda tónleikum. Þar koma m.a. fram Kolrassa krókríðandi, Valdimar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson og nýstirnið Guðjón Þorgils Kristjánsson, sem er fyrstur nemenda til að bera sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldskólanna. Tónleikar hefjast á slaginu 18.00 og standa til 21.00 og er aðgangur ókeypis og aldurstakmark ekkert.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Á laugardag býður skólinn gestum á opið hús kl. 12.00 sem stendur til 14.00 þegar við tekur hátíðlega athöfn með tónlistaratriðum, ávörpum ráðherra, skólameistara og fleiri tengdra aðila auk kaffiveitinga. Við hvetjum unga sem aldna til að láta sjá sig.

Meðfram afmælinu kemur út glæsilegt afmælistímarit þar sem farið er yfir söguna í myndum og máli þar sem gefst mikil innsýn inn í líf og störf innan Fjölbrautaskóla Suðurnesja síðastliðna hálfa öld.

Bílakjarninn
Bílakjarninn