Ása Björg braut ísinn en silfrið var lokaniðurstaða
- Sjáið viðtöl eftir leikinn neðst í fréttinni
Gott silfur er gulli betra er það sem Grindavík/Njarðvík tekur með sér úr viðureign dagsins við Þrótt í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á Laugardalsvelli. Það voru Suðurnesjakonurnar sem brutu ísinn og skoruðu fyrsta markið í leiknum. Þær fengu hins vegar fljótlega í andlitið vítaspyrnudóm og svo annað mark, sem reyndist að lokum sigurmark Þróttar.
Fyrri hálfleikur
Þróttarar byrjuðu af krafti en Gri/Nja tóku yfir
Þróttastúlkur mættu af mikilli hörku inn í leikinn og strax á 4. mínútu skapaðist gífurleg hætta í teig Grindavíkur/Njarðvíkur. Þróttur átti þar þrjár tilraunir í sömu sókninni þar sem Katie Cousins, Kayla Marie Rollins og Unnur Dóra Bergsdóttir reyndu allar skot, en vörn Suðurnesjakvenna fleygði sér fyrir boltann af stakri hetjudáð.
Eftir því sem leið á hálfleikinn náðu Suðurnesjakonur meiri tökum á leiknum. Ása Björg Einarsdóttir og Elísa Birta Káradóttir voru sífellt að valda hættu með sprettum sínum og vörn Þróttar, undir forystu Mistar Funadóttur, þurfti að hafa sig alla við – en Mist nældi sér snemma í gult spjald fyrir að stöðva Ellie Coffield. Þrátt fyrir fín tækifæri á báða bóta var staðan jöfn, 0-0, þegar flautað var til hálfleiks.
Seinni hálfleikur
Síðari hálfleikurinn bauð upp á algjöra rússíbanaferð
69. mínúta – Gri/Nja tekur forystuna (1-0):
Eftir flotta sókn fann Hrafnhildur Salka Sophiu Faith í frábærri stöðu. Sophia kom boltanum fyrir þar sem Ása Björg Einarsdóttir náði að stjórna boltanum meistaralega og senda hann örugglega í fjærhornið. Grindavík/Njarðvík komið yfir við mikinn fagnaðarlæti sinna stuðningsmanna.
75.–76. mínúta – Víti og jöfnun Þróttar (1-1):
Gleðin varð þó skammvinn hjá Grindavík/Njarðvík. Elísa Birta braut af sér innan teigs og Þórður dómari benti örugglega á punktinn. Sæunn Björnsdóttir steig af öryggi á punktinn og setti boltann niðri í vinstra hornið. Staðan orðin 1-1.
82. mínúta – Sigurmark Þróttar (1-2):
Þróttarar nýttu meðbyrinn af fullum krafti. Björg Gunnlaugsdóttir fann Unni Dóru Bergsdóttur auða og aleina inni í teig Grindavíkur/Njarðvíkur, sem þakkaði kærlega fyrir sig og kláraði færið af stakri prýði.
Ótrúlegur lokakafli
Lokamínúturnar voru spennuþrungnar. Grindavík/Njarðvík færði miðvörðinn Emmu Nicole Phillips upp í framlínu í leit að jöfnunarmarki.
Á 88. mínútu átti Mollee, markvörður Þróttar, sem hafði þurft aðhlynningu og leikið meidd á lærinu stóran hluta seinni hálfleiks, ótrúlega vörslu þegar hún varði skalla af stuttu færi frá Sophiu. Mollee og hélt Þrótturum yfir með ótrúlegum hætti í markinu allt til lokaflautsins en sex mínútum hafið verið bætt við leikinn, aðallega vegna meiðsla markvarðar Þróttar.
Hér að neðan eru viðtöl sem Hilmar Bragi tók í leikslok.







