Íþróttir

Keflavík í vandræðum gegn efsta liði deildarinnar
Muhamed Alghoul skoraði mark Keflavíkur gegn Víkingum.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 14. september 2026 kl. 21:40

Keflavík í vandræðum gegn efsta liði deildarinnar

Keflvíkingar máttu þola 1-4 tap gegn besta liði Bestu deildar í knattspyrnu, Víkingum, í leik liðanna í Fossvoginum í kvöld í úrslitakeppni efri hluta deildarinnar. Þetta var fyrsti leikur bítlabæjarliðsins í úrslitakeppninni en liðið hafnaði í 6. sæti eftir deildarkeppnina og komst í efri hlutann.

Keflvíkingar voru í vandræðum í fyrri hálfleik og fengu á sig þrjú mörk og annað til viðbótar í byrjun síðari hálfleiks. Þeir hresstust þó við það og sýndu betri leik í seinni hálfleik og uppskáru eitt mark þegar Muhamed Alghoul skoraði á 74. mínútu. Þeir áttu sláarskot á 82. mínútu og voru óheppnir að boltinn færi ekki í netið eftir góða spyrnu frá Marin.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Keflvíkingar eiga næsta leik gegn Fram, næst efsta liði deildarinnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn