Fréttir

Bæjarfulltrúi leiður á pólitísku tuði
Mánudagur 14. september 2026 kl. 10:27

Bæjarfulltrúi leiður á pólitísku tuði

Hjörtur Magnús Guðbjartsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, lýsti yfir megnri óánægju með andrúmsloftið og stílinn á umræðum bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á síðasta fundi. Fundurinn hafði einkennst af átökum milli meiri- og minnihluta um tilfærslur verkefna, launakjör og vinnubrögð.

Hjörtur sagði umræðuna á báða bóga vera „drepleiðinlega“ og gagnrýndi lágkúruleg skot og tilgangslaust tuð sem bitnuðu á störfum bæjarstjórnar. Hann sagðist ekki nenna fjórum árum af slíku fasi.

Með vísan til langrar reynslu sinnar í stjórnmálum kom Hjörtur með skilaboð til beggja fylkinga. Hann minnti á að hlutverk minnihlutans væri að rýna til gagns og að gagnrýni á vinnubrögð væri ekki það sama og að tala bæinn niður. Til meirihlutans sagði hann að versti óvinur minnihlutamannsins væri skortur á upplýsingum og ákvarðanataka á lokuðum fundum, sem eyðilagði traust. Hann nefndi að í sinni formannstíð hefði hann aldrei haldið sérstaka meirihlutafundi fyrir nefndarfundi.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hjörtur benti á að síðasta kosningabarátta hefði verið sú harðasta sem hann hefði upplifað og sló á létta strengi með því að stinga upp á „kitlukeppni“ til að hressa hópinn við. Hann brýndi bæjarfulltrúa til að muna að þau væru kjörin til að þjóna sama fólkinu, stöðva neikvæðnina og vinna saman að spennandi verkefnum bæjarins.

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri tók undir orð Hjartar og fagnaði kalli hans eftir meiri samvinnu, málefnalegri umræðu og gagnsæi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn