Visitor
Visitor

Fréttir

90 rýma hátækni hjúkrunarheimli  opnar á Ásbrú sumarið 2028
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 16. september 2026 kl. 05:29

90 rýma hátækni hjúkrunarheimli opnar á Ásbrú sumarið 2028

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun sjá um rekstur nýja heimilisins. Opnar sumarið 2028.

Framkvæmdir eru að hefjast við nýtt og glæsilegt 90 rýma hjúkrunarheimili á Ásbrú. Verkefnið felst í því að endurbyggja tvö eldri fjölbýlishús við Keilisbraut, stækka þau og tengja saman í eina 6.500 fermetra heild. Icelandic Home ehf. hefur gert leigusamning við íslenska ríkið um húsnæðið og er hönnun verkefnisins á lokastigi samhliða undirbúningi framkvæmda.

Á upplýsingafundi um verkefnið fögnuðu frummælendur því að framtak einkaaðila, hönnuða, ríkisins og sveitarfélagsins hafi mæst til að svara brýnni þörf fyrir stóraukið svigrúm í öldrunarþjónustu á Suðurnesjum.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Svörðu brýnni þörf framtíðarinnar

Sigurður Garðarsson, verkfræðingur og verkefnisstjóri sagði brýna þörf samfélagsins fyrir aukinn fjölda hjúkrunarrýma og fagnaði því að stjórnvöld hafi kallað einkaaðila að borðinu. Það opni ný tækifæri til hraðari uppbyggingar.

„Þörfin fyrir fleiri hjúkrunarrými er býsna mikil og eitt af stóru verkefnum næstu árin og áratugina. Og sú þörf er brýn í dag. En við vitum að hún á eftir að aukast verulega þegar næstu kynslóðir koma hérna,“ sagði Sigurður. „Þess vegna eru verkefni eins og það sem við kynnum hér ekki bara æskileg, þau eru nauðsynleg ef við ætlum að vera tilbúin fyrir það sem framundan er.“

Sigurður benti á að á næstu tveimur áratugum muni hlutfall elstu aldursflokkanna hækka úr 10–12% í um 20% af þjóðinni. Áætlanir ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir að bæta við 400 rýmum á næstu fimm árum, og eru þessi 90 rými á Ásbrú inni í þeirri tölu.

Eldri byggingar breytast
í hátæknilegt heimili

Þorleifur Björnsson, aðalhönnuður og hönnunarstjóri hjá Glóru, kynnti hönnunarlausnina sem fengið hefur vinnuheitið Ásvellir. Hann fór yfir hvernig 5.000 fermetra fyrrum hermannabyggingar verða nýttar og stækkaðar um 1.500 fermetra með nýrri tengibyggingu milli húsanna.

Þorleifur eyddi óvissu um ástand eldri bygginganna og benti á að steyptir útveggir væru allt að 30 cm þykkir – helmingi þykkri en gengur og gerist – og að mannvirkin stæðu traust á klöpp. Með því að varðveita og klæða steypta burðarvirkið frekar en að rífa og byggja nýtt næst umtalsverður umhverfis- og kolefnissparnaður.

Íbúðarrýmin verða um 28 fermetrar að stærð, öll með einkasnyrtingu, og búin nýjustu tækni:

Gálgabrautir í loftum: Brautarkerfi sem liggja yfir herbergjum og inn á salerni auðvelda flutning íbúa og gera einum starfsmanni kleift að aðstoða í stað tveggja.

Rafhækkanleg salerni: Tækni sem hjálpar íbúum að viðhalda sjálfstæði sínu lengur.

Aðstaða fyrir fjölskyldur: Í kjallara verður sérstakt rými með útsýni út í garð þar sem heimsóknir aðstandenda geta farið fram utan sjálfra deildanna.

HSS tekur við rekstrinum og eflir bráðaþjónustuna

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun annast þjónustu og rekstur hjúkrunarheimilisins. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS, sagði að nýja heimilið muni ekki einungis bæta öldrunarþjónustu heldur einnig efla sjúkrahúsið í heild sinni:

„Með því að byggja hér upp hjúkrunarheimili erum við um leið að styrkja heilbrigðisstofnunina sem sjúkrahús, þannig að við getum losað hjúkrunardeildina hjá okkur og eflt hana sem bráðasjúkrahús fyrir Suðurnesjafólk,“ sagði Guðlaug Rakel.

Hún bætti við að HSS hefði lagt mikla vinnu í rýni teikninga til að tryggja að útkoman yrði raunverulegt heimili þar sem fólki liði vel en ekki stofnun. Stefnt er að því að opna heimilið sumarið 2028.

Herstöðin að íbúabyggð

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði daginn marka merkileg tímamót. Hann hrósaði heimafólki og atvinnulífinu fyrir að sýna frumkvæði og fylgja verkefninu eftir.

Vilhjálmur benti sérstaklega á táknrænt gildi framkvæmdarinnar á Ásbrú:

„Ég held að þetta sé eitt skýrasta merkið og eitt stærsta skrefið í að þróa þetta af hersvæði yfir í venjulega íbúabyggð. Ég efast um það, þótt margt sé hér nú frá því að herinn var hér, að hann hafi einhvern tímann hugsað sér að byggja hjúkrunarheimili. Þannig að þetta eru alveg skýr umskipti.“

Hann nefndi einnig að Ásbrú væri að þróast hratt í öflugt og fjölbreytt samfélag þar sem saman fara blómlegt atvinnulíf, hótelrekstur, samkomustaðir og starfsemi sveitarfélagsins á borð við hæfingarmiðstöðina við Keili.

Framkvæmdaundirbúningur er kominn vel á veg. Grenndarkynningu er lokið og skipulagsnefnd hefur samþykkt verkefnið. Niðurrif á millibyggingum er hafið og gröfur bíða þess að hefja jarðvinnu fyrir sökkla tengibyggingarinnar. Reiknað er með að bjóða út uppsteypu á næstu vikum og hefja innanhússframkvæmdir fljótlega eftir áramót.

Sigurður Garðarsson og Þorleifur Björnsson kynntu verkefnið.

Fjölmargir voru á kynningunni sem fram fór á Konvin hótelinu.

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja á spjali við Sighvat Gunnarsson, útibússtjóra Íslandsbanka.

Bílakjarninn
Bílakjarninn