Öll verkefni 100 daga áætlunar komin í framkvæmd
Öll verkefni 100 daga áætlunar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Reykjanesbæ eru komin í skýran farveg og ekkert verkefni hefur setið eftir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í Reykjanesbæ.
Meðal stærstu aðgerða fyrstu 100 daganna er niðurfelling innviðagjaldsins, sem nú er 0 krónur á fermetra í öllum flokkum. Pólitískum nefndum og ráðum hefur jafnframt verið fækkað með tæplega 10 milljóna króna árlegum sparnaði og ráðist hefur verið í heildarendurskoðun fjármála bæjarins með sérstöku umbóta- og hagræðingarteymi.
Á sama tíma hefur verið sett aukið afl í uppbyggingu og atvinnumál. Unnið er að stórauknu framboði sérbýlislóða, 16 atvinnulóðir í Helguvík og Fuglavík eru í undirbúningi og bæjarstjóri átti á fyrstu 100 dögunum að hátt í 40 fundi með fyrirtækjum og forsvarsmönnum atvinnulífsins sem hafa áhuga á uppbyggingu í Reykjanesbæ.
Þá hafa ýmis stór verkefni verið sett í formlegan farveg. Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð hefur ákveðið að skipa sérstakan stýrihóp sem leiðir samtal við íþróttahreyfinguna um aukinn stuðning við íþróttafélög, lækkun æfingagjalda og framtíðarsýn í mannvirkjamálum. Jafnframt hefur verið stofnaður tímabundinn spretthópur sem vinnur að aðgerðaáætlun um fjölgun leikskólakennara og annars fagmenntaðs starfsfólks með það að markmiði að skapa forsendur fyrir lægri inntökualdri barna. Starfshópur vinnur einnig að þróun samræmdra árangursmælinga og mælaborðs fyrir grunnskóla bæjarins. Þá er vinna hafin við nýja göngu- og hjólastíga og ráðist hefur verið í umfangsmikla trjárækt og fegrun víða um bæinn.
„Við lögðum fram metnaðarfulla 100 daga áætlun og niðurstaðan er sú að öll verkefnin eru komin af stað. Þetta er þó aðeins upphafið. Við ætlum að halda sama hraða áfram, lækka álögur, einfalda stjórnsýsluna og skapa betri skilyrði fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og uppbyggingu í Reykjanesbæ. Tilgangurinn með 100 daga planinu var að leggja grunninn að nýju sóknarskeiði í Reykjanesbæ. Það tókst og árangurinn á þessum fyrstu 100 dögum fór raunar fram úr okkar björtustu vonum,“ segir meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í tilkynningunni.






