„Við erum að reyna að einbeita okkur að því að auka jákvæðar fréttir af Reykjanesbæ“
Hressilegar umræður urðu á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þegar bókanir minnihlutans (Framsóknar og Samfylkingar) voru ræddar. Tilefnið var tilfærsla íþrótta- og tómstundamála undir skrifstofu bæjarstjóra, sem meirihlutinn segir gert til að auka vægi málaflokksins, en minnihlutinn sagði í bókunum sínum vera einkamál bæjarstjóra.
Kristján Pétur Kristjánsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi orðbragð minnihlutans í opinberum bókunum þar sem talað var um „alvalda bæjarstjóra Reykjanesbæjar“ og að ákvarðanir væru teknar í „reykfylltu bakherbergi sparnaðarteymis“.
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri brást af hörku við og sagði DV-bókanir minnihlutans rugla umræðuna. „Við erum að reyna að einbeita okkur að því að auka jákvæðar fréttir af Reykjanesbæ,“ sagði hann meðal annrs og sagðist þola gagnrýni á óformlegum vettvangi en að sér væri misboðið þegar slíkur málflutningur fari í opinber skjöl sveitarfélagsins. Síðar sagði hann á léttari nótum að hann þyrfti kannski að vera með beina útsendingu frá skrifstofu sinni til að fyrirbyggja misskilning, en undirstrikaði að hann þyrfti eðlilegt svigrúm til að undirbúa mál með starfsfólki.
Kristján Pétur hafnaði einnig fullyrðingum minnihlutans. Hann benti á að Sjálfstæðisflokkurinn ætti enga skrifstofu í ráðhúsinu heldur væri hún í Grófinni 8. Meint bakherbergi væri í raun opið vinnurými frammi á gangi þar sem umbóta- og hagræðingarteymi bæjarins starfar, en ekki sparnaðarteymi.
Vilhjálmur kallaði eftir málefnalegri gagnrýni og virðingu í umræðum og ítrekaði að meirihlutinn myndi halda áfram að vinna að skilvirkni og uppfylla stefnuskrá sína.








