Blue Carrental
Blue Carrental

Pistlar

Ljósanóttin góða
Mánudagur 14. september 2026 kl. 11:03

Ljósanóttin góða

Það var ekki bara líf og fjör á tuttugustu og fimmtu Ljósanóttinni heldur voru veðurguðirnir í sínu besta skapi og svei mér þá, líklega er þetta mesti fjöldi sem hefur sótt hátíðina heima frá upphafi, einhverjir tugir þúsunda.

Ritstjórinn sem þetta ritar getur rifjað upp bernskubrek Ljósanætur þegar við gengum með Steinþóri Jónssyni, sem fékk viðurnefnið Ljósálfur, niður Hafnargötuna í Keflavík fyrir fyrstu Ljósanóttina og hvöttum verslanir og aðila til að bjóða upp á tilboð og gera eitthvað meira á nýrri bæjarhátíð. Steini átti frumkvæðið að lýsingu Bergsins og var í framlínu hátíðarinnar mörg fyrstu árin en hann fékk góða aðila til að hjálpa til í lýsingarverkefninu sem við getum sagt að sé risastórt umhverfislistaverk á heimsmælikvarða sem hefði átt að verðlauna. Við njótum þess að horfa á ljósin kvikna á meðan flugeldasýning dynur í loftinu og síðan lýsa ljósin á Keflavíkurbjargi upp myrkrið yfir níu mánuði ársins eða um það bil.

Hátíðin stækkaði fljótt fyrstu árin og dregur nú að tugi þúsunda manns, heimafólk á Suðurnesjum og aðra. Fjöldi heimamanna sýndi margs konar listir sínar, hvort sem það er listmálun eða önnur menning, og ég gerði mér far um að ræða við nokkra sem voru að sýna sín verk á þessari Ljósanótt og langflestir voru mjög ánægðir með hvað margir keyptu verk. Þar voru eldri og ungir listamenn, allt niður í 15 ára myndlistarpeyja sem sýndi málverk í einu elsta húsi bæjarins. Þar var líka aðeins eldri strákur með sýningu á nýju ilmvatni. Nýju ilmirnir hans ilmuðu vel og þessi frumraun hans á þessu sviði hefur tekist vel og fengið frábærar viðtökur en vissulega tekið nokkur ár. Frábært úrval tónleika var í boði á flottum stöðum eins og Hljómahöll, í Duus húsum en líka í heimahúsum og nú var í fyrsta sinn boðið upp á slíkt í minnsta hverfi Reykjanesbæjar, Höfnunum, þar sem var uppselt. Það er ekki hægt að minnast á Ljósanótt öðruvísi en hrósa Axel Jónssyni og hans fólki í Skólamat sem færði okkur ljúffenga kjötsúpu fyrir framan ráðhús Reykjanesbæjar en það hafa þau gert í áratugi. Árgangagangan er líklega skemmtilegasta atriðið á Ljósanótt. Það var algerlega magnað að ganga niður Hafnargötuna með þúsundum manna, kvenna og barna.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Það var líka magnað að vera fyrir framan stóra sviðið á laugardagskvöldi innan um allan þennan mannfjölda. Tónlistarfólkið hélt uppi stemmningu og það vel fram á kvöld. Vissulega sá maður nokkur ungmenni við skál en langflest þeirra höguðu sér vel og skemmtu sér eins og við hin. Ekki skal gert lítið úr áhyggjum af slíku og kannski þarf að auka gæslu og aðstoð við ungmennin. Það kom þó á óvart að stærstu landsfjölmiðlarnir fjölluðu nær eingöngu um það á sunnudegi að ölvun ungs fólks hafi verið áberandi. Fréttakollegar okkar í höfuðborginni sögðu lítið og sumir ekkert frá vel heppnaðri tuga þúsunda hátíð í stærsta sveitarfélaginu utan höfuðborgarsvæðisins.

Við á Víkurfréttum gáfum út næststærsta blað ársins, 64 blaðsíður, og við vonum að þið lesendur hafi notið þess. Bestu þakkir til yfir hundrað aðila sem studdu okkur í útgáfunni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn