Bjössi lét nú ekki eitthvað leiðindaveður stöðva sig
Jæja, þá er lengstu strandveiðivertíð landsins lokið, en veiðar voru stöðvaðar þann 13. ágúst og þeir bátar sem réru alla þá daga sem mátti róa gátu mest farið í 42 róðra. Reyndar voru ekki margir færabátar frá Suðurnesjunum sem náðu 42 róðrum því að júlí var frekar leiðinlegur gagnvart veðri.
Bjössi skipstjóri á Dímon GK lét nú ekki eitthvað leiðindaveður stöðva sig, en hann náði að harka af sér og fór í 41 róður. Var hann líka sá bátur á Faxaflóasvæðinu og alveg að Hornafirði sem fór í flesta róðrana, sem er ansi vel af sér vikið því eins og áður segir var veðurfarið í júlí frekar leiðinlegt og það kom fyrir að Bjössi var aleinn á sjónum. Úr þessum 41 róðri landaði báturinn 25 tonnum.
Annars er aðeins að færast líf í hafnirnar og reyndar fengum við smá línuafla af minni bátunum því að Fjölnir GK kom með 7,8 tonn í einni löndun til Grindavíkur og var langauppistaðan í aflanum 5,5 tonn. Fjölnir GK fór síðan til Neskaupstaðar og þangað er líka komin Margrét GK frá Sandgerði. Fjölnir GK hefur landað 42 tonnum þar í fjórum róðrum og Margrét GK hefur landað um 70 tonnum í 7 róðrum.
Ég var nú reyndar í Neskaupstað núna 14. ágúst því að ég fór ásamt tveimur öðrum bílstjórum á þremur 9 manna bílum með fótboltastráka sem voru að spila í Neskaupstað og á meðan á leiknum stóð þá sigldi fyrst Margrét GK fram hjá og síðan Fjölnir GK fram hjá vellinum.
Fiskinum af Margréti GK er ekið alla leið til Sandgerðis til vinnslu og er þetta vægast sagt ansi löng leið eða um 750 kílómetra löng, en Eimskip sér um að aka fiskinum suður.
Ef við færum okkur á Suðurnesin þá eru báðir stóru línubátarnir frá Vísi, Sighvatur GK og Páll Jónsson GK, komnir á veiðar og eru báðir bátarnir að mestu að eltast við löngu og keilu. Það gekk ansi vel hjá Sighvati GK en hann kom til Grindavíkur með 124 tonna afla og af því var keila 42 tonn og 58 tonn af löngu. Þorskur var aðeins rúm 8 tonn.
Páll Jónsson GK kom líka til Grindavíkur en hann var með töluvert minni afla, enda voru bátarnir á veiðum ekki á sömu slóðum. Sighvatur GK var að mestu austur út frá Vestmannaeyjum en Páll Jónsson GK var vestur út frá Eldey. Páll Jónsson GK kom með 58 tonna afla og af þeim afla var keila 22 tonn og langa 26 tonn.
Dragnótabátarnir frá Sandgerði eru líka byrjaðir og hefur Sigurfari GK sem var að koma úr slipp landað 8,4 tonnum í 2 róðrum. Siggi Bjarna GK 27 tonn í 3 og mest 12 tonn, Margrét GK 26 tonn í 3 róðrum og Benni Sæm GK 22 tonn í 3 róðrum og mest 12 tonn.





