MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Pistlar

Útgerðin vaknar eftir sumarleyfisdvala
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 14. ágúst 2026 kl. 10:07

Útgerðin vaknar eftir sumarleyfisdvala

Ágústmánuður er kominn af stað og enn þá eru strandveiðarnar í gangi. Og er þetta því orðið lengsta strandveiðitímabil frá upphafi, en það styttist í vertíðarlok á strandveiðunum, en menn eru nú samt sem áður ansi sáttir, þeir sem hafa róið alla þá daga sem má róa eru að detta í kringum 40 róðra á tímabilinu sem er nú nálægt þeim 48 dögum sem strandveiðisjómenn vilja.

Það er aðeins að færast líf í útgerð frá Suðurnesjum, því að júlímánuður var vægast sagt mjög rólegur. Stóru línubátarnir tveir í Grindavík, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, voru stopp allan júlí en eru komnir á veiðar. Páll Jónsson GK byrjaði á veiðum út við Eldey og þar úti, og Sighvatur GK fór meðfram suðurströndinni. Hvorugur bátanna hefur landað afla þegar þessi pistill var skrifaður.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Flestallir dragnótabátarnir voru líka stopp, allir Nesfisksbátarnir voru stopp, Siggi Bjarna GK og Benni Sæm GK voru báðir í Sandgerði allan júlí og Sigurfari GK var í slipp í Njarðvík, en hann fór á flot fyrir nokkrum dögum. Reyndar fóru Benni Sæm GK og Siggi Bjarna GK í sína fyrstu róðra eftir síðustu helgi og reyndar eru aflatölur ekki komnar þegar þessi pistill var skrifaður.

Reyndar voru tveir bátar sem voru báðir á netaveiðum sem réru báðir nokkuð duglega í júlí og báðir hafa líka róið núna í ágúst. Þetta voru netabátarnir Grímsi GK og Emma Rós KE. Báðir bátarnir voru að eltast við ufsann en þá á sitthvorum staðnum. Grímsi GK var að mestu meðfram suðurströndinni frá Vestmannaeyjum og alveg austur að Jökulsárlóni og gekk mjög vel hjá honum í júlí, hann var með 216 tonn í 13 róðrum og mest tæp 30 tonn í einni löndun. Báturinn landaði öllum aflanum í Þorlákshöfn. Emma Rós KE var í Sandgerði og með netin í Röstinni og áleiðis að Stafnesi og var með í júlí 19,6 tonn í 6 róðrum. Núna í ágúst hefur Emma Rós KE byrjað ágúst ansi vel, því að báturinn hefur landað 12 tonnum í 3 róðrum og mest 5,5 tonnum í einni löndun. Hjá báðum bátunum er ufsi uppistaðan í aflanum.

Núna er líka Stakkavík aðeins að vakna og eru tveir bátar frá fyrirtækinu komnir til Skagastrandar á línu. Gulltoppur EA sem er á balalínu og Óli á Stað GK. Óli á Stað GK hefur landað 33 tonnum í 4 róðrum og mest 11,7 tonnum í einni löndun og Gulltoppur EA 9 tonnum í 4 og mest 5,3 tonn. Reyndar er búið að skrá nýtt fyrirtæki fyrir Gulltoppi EA en það fyrirtæki heitir Hemmavík ehf. Það þýðir að Hemmi er komið í tvo hluta, Hemmavík ehf. og síðan bátinn Hemma á Stað GK.

Þriðji báturinn frá Stakkavík hefur verið að veiðum síðan um miðjan júlí og er það færabáturinn Hópsnes GK. Hann byrjaði á ufsaveiðum í Röstinni og úti á Skerjum og gekk nokkuð vel, en færði sig síðan austur á Hornafjörð og hefur gengið lítið hjá honum þar. Í júlí þá var Hópsnes GK með 10,5 tonn í 5 róðrum og fór síðan austur og hefur landað þar aðeins um 950 kílóum í tveimur róðrum.

Reyndar eru fimm aðrir færabátar sem eru þarna lengst úti á skerjum að eltast við ufsann og eru þeir allir að landa í Sandgerði. Dóra Sæm HF hefur farið í einn róður og kom með 1,3 tonn. Sindri GK hefur líka farið í einn róður og kom með 2,8 tonn. Ragnar Alfreðs GK með 3 tonn í einni löndun, Addi Afi GK kom með 2,9 tonn í einni löndun og Guðrún GK sem kom með 4 tonn líka eftir eina löndun. Þegar þessi pistill er skrifaður voru allir þessir bátar úti á sjó og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim gengur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn