Sæbjúgan er öðruvísi
Júlímánuður er svo til orðinn hálfnaður og þetta er vægast sagt mjög rólegur mánuður, því mjög mörg fyrirtæki eru farin í sumarfrí, til dæmis Vísir ehf. í Grindavík og þar með línubátarnir Sighvatur GK og Páll Jónsson GK. Enda er búið að vera ansi rólegt um að vera í löndunum á Suðurnesjunum núna það sem af er júlí. Lítum aðeins á.
Í Grindavík kom frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarsson GK með 497 tonn í land í einni löndun og var aflinn blandaður, mest af þorski 196 tonn, 149 tonn af ýsu og 93 tonn af karfa. Páll Jónsson GK landaði 102 tonnum og Sighvatur GK 63 tonnum og fóru svo í sumarfrí.
Færabátarnir í Grindavík hafa aðeins komist í einn róður og er Hópsnes GK hæstur af þeim með 2,9 tonn í einni löndun, en hann var að veiða ufsa út á Boða, ansi langt frá landi. Ólafur GK hefur reyndar náð að fara í tvo róðra og landað 1,3 tonnum.
Í Njarðvík og Keflavík er búið að vera mjög rólegt, Ósk KE með 510 kíló í tveimur róðrum og Kristín GK með 760 kíló í tveimur róðrum. Enginn netabátur hefur verið að landa í Keflavík/Njarðvík en í Njarðvík hefur Klettur ÍS verið að landa en hann er að veiða sæbjúgu og hefur verið við veiðar út frá Garðskagavitanum, og hefur gengið nokkuð vel, hefur landað 76 tonnum í 7 róðrum og mest 14,5 tonnum í einni löndun.
Klettur ÍS er einn af tveimur bátum á landinu sem eru allt árið að veiða sæbjúgu, hinn báturinn er Jóhanna ÁR sem hét áður Sigurfari GK. Áður voru sæbjúguveiðar án kvóta en fiskveiðiárið 2022-2023 var sæbjúgan sett í kvóta. Þær fisktegundir sem eru í kvóta eru án takmarkana sem þýðir að bátar og togarar mega veiða allar tegundir um alla landhelgina fyrir utan að togararnir eru bundnir við fjarlægð frá landi,
Sæbjúgan er öðruvísi því að kvótanum á henni er skipt niður í átta svæði. Svæðin átta eru: A, Vestfirðir, Norður- og í Aðalvík. B, Vestfirðir Miðsvæði, C, Vestfirðir Suðursvæði, D, Utanverður Breiðafjörður, E, Faxaflói. F, Austurland, Norðursvæði, G, Austurland, Miðsvæði og H, Austurland Suðursvæði.
Klettur ÍS er með heimildir á öllum þessum svæðum og er alls með 782 tonna sæbjúgukvóta, mest á svæði G, en þá hefur báturinn verið að landa að mestu á Breiðdalsvík. Í Faxaflóa er Klettur ÍS með 113 tonna kvóta af sæbjúgum.
Hinn báturinn sem er með sæbjúgukvóta er Friðrik Sigurðsson ÁR en Jóhanna ÁR sér um að veiða sæbjúgukvótann. Hafnarnes Ver í Þorlákshöfn á báða bátana og er kvótinn sem báturinn er með 1020 tonn, og mest á svæði G, 484 tonn. Í Faxaflóa er Friðrik Sigurðsson ÁR með 197 tonna kvóta sem Jóhanna ÁR sér um að veiða.
Reyndar var ansi miklu landað af sæbjúgum í Sandgerði á árunum 2009–2011, og mest 2010, en þá voru þrír bátar sem lönduðu þar sæbjúgum, en það var á þeim tíma sem sæbjúgan var utan kvóta og var veiðin nokkuð góð hjá þeim bátum.







