Brennuhugur í bæjarstjórn
Bæjarfulltrúar í Suðurnesjabæ vilja hefja undirbúning fyrir áramótabrennu sveitarfélagsins strax í haust. Á fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar var skorað á meirihlutann að tryggja að málið yrði dregið úr baklás, en skipulagning brennu á svokallaðri „miðju“ á milli byggðakjarnanna Sandgerðis og Garðs hafði áður stöðvast.
Umræðan hófst þegar fundargerð ferða-, safna- og menningarráðs var lögð fram. Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins (B-lista), steig í pontu og sagðist hlakka mikið til Vitadaganna sem fram undan eru en benti á að hann væri maður sem hugsaði fram í tímann. Hann lýsti yfir miklum söknuði yfir því að ekki hefði verið haldið almennilega upp á áramótin í sveitarfélaginu með veglegri áramótabrennu og lagði áherslu á að hefja þyrfti undirbúning strax þegar hausta tekur.
Anton sagði mikilvægt að finna góðan stað fyrir brennuna og hvatti meirihlutann til að láta ekki ströng skilyrði brunaeftirlitsins stoppa sig:
„Þetta eru svona hefðir og það er mikilvægt fyrir marga að geta farið á áramótabrennu. Ég veit að við höfum verið með þessa kyndlagöngu, en það er einhvern veginn í mínum huga ekki sama stemningin. Ég veit að þetta er háð ströngum skilyrðum brunaeftirlits... en þetta er allt mannanna verk, það er hægt að finna öllum hlutum einhvern farveg. Þetta er bara svona brýning um að áramótin verði ekki klúðruð einu sinni með því að sleppa þessu,“ sagði Anton á fundinum.
Skipulag fótboltavallar setti brennuna í baklás
Árni Gísli Árnason, starfandi bæjarstjóri, tók undir brýninguna og sagði málið þegar hafa verið rætt nokkrum sinnum í ráðinu. Helsta áskorunin væri sú að enginn staður fyndist í þéttbýlinu, hvorki í Sandgerði né í Garðinum, sem uppfyllti ströng öryggisskilyrði. Hann staðfesti að ákveðin greiningarvinna hefði farið fram á árunum 2024 og 2025 um að hafa brennusvæði á miðjunni á milli bæjarkjarnanna, en sú vinna hefði stöðvast. Árni Gísli lagði til að málið yrði tekið á dagskrá næsta fundar til að sjá hver staðan á þessu brennusvæði væri í dag.
Anton Kristinn tók þá aftur til máls og útskýrði nánar hvers vegna málið hefði strandað á sínum tíma:
„Við munum það alveg af hverju þetta stöðvaðist. Það var vegna þess að fráfarandi meirihluti ákvað að fara að hanna fótboltavöll á miðjunni þar sem brennustaður átti að vera, og þess vegna var sú vinna öll sett í baklás. Þannig stóð hnífurinn í kúnni.“
Anton bætti því við að þar sem flestir áttuðu sig líklega á því að sá fótboltavöllur væri fjarlægur draumur sem myndi ekki raungerast á næstu mánuðum, væri tilvalið að dusta rykið af brennuhugmyndinni á þessum stað.
Haukur Andrésson, forseti bæjarstjórnar, tók undir þessi sjónarmið og var almennur stuðningur við það meðal bæjarfulltrúa að tryggja að íbúar Suðurnesjabæjar gætu safnast saman við veglega áramótabrennu í lok ársins. Málið verður tekið til formlegrar umfjöllunar á næsta fundi ferða-, safna- og menningarráðs.







