Ný stúka vígð á Nesfisk-vellinum á föstudaginn
Knattspyrnufélagið Víðir í Garði mætir KH á föstudaginn klukkan 19:15 á Nesfisk-vellinum. Leikurinn verður sérstaklega hátíðlegur þar sem ný áhorfendastúka félagsins verður formlega vígð.
Félagið hvetur fólk til að mæta snemma, eða klukkan 18:15, og taka á móti nýju stúkunni saman.
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna:
-
Grillaðir Víðisborgarar verða á sínum stað frá klukkan 18:15.
-
Blaðrarinn mætir og býr til blöðrur fyrir börnin.
-
Börnum er velkomið að leiða leikmenn inn á völlinn fyrir leik.
-
Öll börn eru hvött til að taka þátt í vítaspyrnukeppni í hálfleik.
Allir eru hvattir til að mæta á völlinn og styðja við bakið á sínum mönnum.







