Eignasalan
Eignasalan

Fréttir

Vogar: Stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla samþykkt
Fimmtudagur 16. júlí 2026 kl. 09:34

Vogar: Stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla samþykkt

Tillaga vinnuhóps um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla var samþykkt á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga. Málið hlaut samþykki með tveimur atkvæðum fulltrúa meirihlutans, en fulltrúi minnihlutans sat hjá við afgreiðsluna.

Á fundinum gerðu þau Atli Geir Júlíusson, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Verkfræðistofu Suðurnesja, og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, grein fyrir vinnu hópsins og þeirri tillögu sem lögð var fram.

Fulltrúi minnihlutans í bæjarráði ákvað að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna og lét bóka sérstaka athugasemd þess efnis. Í bókuninni kemur fram að greinargerð vinnuhópsins hafi ekki borist minnihlutanum fyrr en sólarhring fyrir fundinn, sem hafi verið of skammur tími til að hægt væri að greiða tillögunni atkvæði.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Minnihlutinn telur nauðsynlegt að rýna vel í tillöguna, leita álits og svara við þeim spurningum sem er ósvarað svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun.“

Eignasalan
Eignasalan