Fréttir

Nýtt fyrirkomulag áhættumats í Grindavík: Fjórir verkefnahópar stofnaðir
Fimmtudagur 16. júlí 2026 kl. 09:32

Nýtt fyrirkomulag áhættumats í Grindavík: Fjórir verkefnahópar stofnaðir

Nýtt fyrirkomulag við áhættumat í Grindavík er nú í innleiðingu. Verkefninu verður skipt upp á milli fjögurra nýrra verkefnahópa sem munu vinna að áhættumiðaðri skoðun og ákvörðunartöku um afmarkaða þætti í samfélaginu.

Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt skipan í hópana, en jafnframt er bent á að sérstaklega þurfi að tryggja aðkomu atvinnurekenda að þessari vinnu.

Hóparnir fjórir og skipan þeirra er eftirfarandi:

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
1. Öryggi í Grindavík

Þessi þáttur er á forræði Grindavíkurbæjar.

Fulltrúar: Pétur G. Markan (bæjarstjóri), Einar Sveinn Jónsson (slökkviliðsstjóri), Pétur Már Benediktsson (varaslökkviliðsstjóri), Þorleifur Ólafsson (bæjarfulltrúi), Sigurður Rúnar Karlsson (veitu- og eignastjóri), Otti Rafn Sigmarsson (Björgunarsveitin Þorbjörn) og Magnús Már Jakobsson (bæjarfulltrúi).

Ráðgjafar: Dr. Sólveig Þorvaldsdóttir (jarðskjálftaverkfræðingur). Bæjarráð leggur til að Jón Haukur Steingrímsson verði sömuleiðis hópnum til ráðgjafar.

2. Skólahald í Grindavík

Þessi þáttur er á forræði Grindavíkurbæjar.

Fulltrúar: Einar Sveinn Jónsson (slökkviliðsstjóri), Pétur Már Benediktsson (varaslökkviliðsstjóri), Guðlaug Erlendsdóttir (skólastjóri), Nökkvi Már Jónsson (sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs) og Ásrún Helga Kristinsdóttir (forseti bæjarstjórnar).

Ráðgjafi: Dr. Sólveig Þorvaldsdóttir.

3. Húsnæðismál og búseta

Þessi þáttur er á forræði verkefnastjóra málefna Grindavíkur.

Fulltrúar frá Grindavíkurbæ: Pétur G. Markan (bæjarstjóri), Pétur Már Benediktsson (varaslökkviliðsstjóri), Guðbjörg Eyjólfsdóttir (formaður bæjarráðs), Björn Steinar Brynjólfsson (varabæjarfulltrúi) og Valgerður Ágústsdóttir (varabæjarfulltrúi).

4. Rýmingar og endurkoma

Þessi þáttur er á forræði lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Fulltrúar frá Grindavíkurbæ: Pétur G. Markan (bæjarstjóri), Einar Sveinn Jónsson (slökkviliðsstjóri), Pétur Már Benediktsson (varaslökkviliðsstjóri) og Hjálmar Hallgrímsson (bæjarfulltrúi).

Eignasalan
Eignasalan