Freyja og Louis S. St-Laurent á Stakksfirði
Það er ekkert sérstaklega sumarlegt veðrið þegar horft er út á Stakksfjörðinn frá Vatnsnesinu í Keflavík þessa stundina. Í grámanum bregður þó fyrir hinum kanadíska CCGS Louis S. St-Laurent og íslenska varðskipinu Freyju.
Þegar myndinni var smellt af mátti sjá léttabát frá þeim kanadíska fara á milli skipanna. Ástæður heimsóknarinnar eru okkur ekki ljósar en við leit á netinu sést að erlenda skipið er á leið til hafnar í Reykjavík.







