Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir tekur við sem skólastjóri Stapaskóla
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir hefur verið ráðin skólastjóri Stapaskóla og tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram á vef skólans.
Hólmfríður er með B.Ed., M.Ed. í menntunarfræðum og meistaragráðu í stjórnun frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur jafnframt lokið Dipl.Ed. í námi og kennslu ungra barna frá Kennaraháskóla Íslands auk viðbótarnáms í kennslufræði fullorðinna frá Háskóla Íslands og fjarnámsfræðum frá Oxford.
Hún býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og skólastarfi, meðal annars sem skólastjóri leik- og grunnskóla, auk reynslu af kennslu og stjórnunarstörfum innan háskólasamfélagsins og sveitarfélaga.







